Skiptar skoðanir íbúa um endurhönnun Hofsvallagötu Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 23. apríl 2014 12:02 Íbúar voru margir hevrjir ekki ánægðir með litagleðina eftir framkvæmdir við götuna síðasta sumar. Á myndinni má sjá gróðurkassana sem voru einnig umdeildir. VÍSIR/VILHELM
Nægur gróður er í Vesturbæ Reykjavíkur og í borginni að mati margra íbúa við Hofsvallagötu og því telja þeir að ekki sé þörf á að gróðursetja tré við götuna. Einhverjir voru þó á því að setja mætti blómakörfur á ljósastaura við götuna. Hofsvallagata þykir einstök borgargata en frá efsta punkti hennar er bein sjónlína niður að sjó. Slíkt er einstakt fyrir breiðgötu í Reykjavík. Íbúar töldu því mikilvægt að gróður sem notaður yrði myndi ekki skyggja á þessa sjónlínu. Þessar hugmyndir er meðal fjölmargra sem komu frá íbúum vegna endurhönnunar Hofsvallagötu í Reykjavík á vinnufundi sem haldinn var á Hótel Sögu í mars. Ráðgjafasvið KPMG hefur skilað skýrslu um fundinn og og þar eru allar hugmyndir fundargesta skráðar.Margir hafa áhyggjur af öryggismálum Í júlí á síðasta ári varð nokkur styr um framkvæmdir við götuna. Hún var þrengd að hluta og við hana voru lagðir hjólastígar. Þá var komið upp fuglahúsum, flöggum og gróðurkössum við hana. Framkvæmdirnar kostuðu tæpar 20 milljónir króna. Íbúar í Vesturbænum voru ekki allir á eitt sáttir við þessa breytingar. Fór svo að lokum að þær voru teknar til baka að mestu leyti í nóvember. Þá var ákveðið að endurhönnun götunnar yrði gerð í samráði við íbúa við götuna og þar í kring. Skoðanir varðandi endurhönnun götunnar eru greinilegar skiptar en þó má greina samhljóm. Þetta kemur fram á vefsíðu Reykjavíkur. Margir höfðu áhyggjur af öryggismálum við götuna og sögðu hraðaakstur vera á neðsta kafla hennar. Hvatt var til þess að umferðarhraði yrði lækkaður.Varast ber of mikla litagleði Á fundinum heyrðust einnig þau sjónarmið að endurgerð götunnar eigi að vera í stíl við hverfið og varast beri of mikla litagleði við endurhönnun hennar. Afstaða til hjólastíga var misjöfn. Ýmist var lagt til þess að þeir yrðu fjarlægðir eða færðir í aðrar götur. Mjókka ætti þá eða breikka. Bent var á kosti þess að opna botnlangagötur að Hofsvalalgötu þar sem það gæti dreift umferðarálagi um hverfið.150 milljónir eiga að fara í endurgerð götunnar Niðurstöðurnar verða hafðar til hliðsjónar við endurhönnun götunnar en Hofsvallagatan er svokölluð borgargata samkvæmt nýju aðalskipulagi og stendur til að endurhanna hana frá Hringbraut og að Ægisíðu. Í slíkum götum er áhersla lögð á jafnt aðgengi fyrir alla, gangandi, hjólandi og akandi, ásamt því að hugað er að umferðaröryggismálum og hægt á umferð. Endanleg hönnun verður kynnt fyrir íbúum í hverfinu þegar hún liggur fyrir en samkvæmt framkvæmdaáætlun borgarinnar eiga 150 milljónir króna að fara í gagngera endurgerð götunnar.
Tengdar fréttir Umferðarmerkingar gætu skapað vegfarendum hættu Ekkert samráð var haft við Strætó bs. áður en þrenging Hofsvallagötu hófst í sumar. Þetta segir sviðsstjóri Skipulags- og þróunarsviðs hjá Strætó og bendir á að umferðarteppur myndist á götunni. 13. ágúst 2013 19:36 Flögg og eyjur hverfa af Hofsvallagötu Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði að fjarlægja flögg og eyjur sem eru á Hofsvallagötu. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir að viðurkenna hefði átt mistök. Ósáttur íbúi segir að ganga hefði átt lengra og tvöfalda akreinar nærri ljósum. 10. október 2013 06:15 Íbúar á Víðimel lokaðir inni í götunni í kjölfar breytinga á Hofsvallagötu Nú þegar fólk er að koma úr sumarfríum er augljóst að umferðin er að aukast. „Það hefur verið mikil umferðaraukning strax í þessari viku eins og sést á myndinni sem ég tók,“ segir Kristinn. 16. ágúst 2013 14:10 Vinnufundur íbúa um endurhönnun Hofsvallagötu í dag Sérfræðingur hjá KPMG stýrir vinnufundi með íbúum um endurhönnun Hofsvallagötu í dag en áður mun fagfólk hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar kynna forsendur verkefnisins. 18. mars 2014 15:15 Fundað vegna Hofsvallagötu Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti tillögu minnihlutans í borgarstjórn í gær um að boðað yrði til almenns íbúafundar strax á næstu dögum um breytingar á skipulagi Hofsvallagötu og framkvæmdir á götunni. 15. ágúst 2013 07:00 Fuglahús og flögg fjarlægð af Hofsvallagötu Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á Hofsvallagötu, þar sem unnið verður samkvæmt tillögum sem gerðar voru í samráði við íbúa í Vesturbæ. 29. nóvember 2013 14:30 Ber enn merki misskilnings Hin skrautlega Hofsvallagata ber enn þess merki þegar starfsmenn Reykjavíkurborgar spúluðu málningu af götunni. 24. september 2013 21:19 Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um reyk í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Sjá meira
Umferðarmerkingar gætu skapað vegfarendum hættu Ekkert samráð var haft við Strætó bs. áður en þrenging Hofsvallagötu hófst í sumar. Þetta segir sviðsstjóri Skipulags- og þróunarsviðs hjá Strætó og bendir á að umferðarteppur myndist á götunni. 13. ágúst 2013 19:36
Flögg og eyjur hverfa af Hofsvallagötu Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði að fjarlægja flögg og eyjur sem eru á Hofsvallagötu. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir að viðurkenna hefði átt mistök. Ósáttur íbúi segir að ganga hefði átt lengra og tvöfalda akreinar nærri ljósum. 10. október 2013 06:15
Íbúar á Víðimel lokaðir inni í götunni í kjölfar breytinga á Hofsvallagötu Nú þegar fólk er að koma úr sumarfríum er augljóst að umferðin er að aukast. „Það hefur verið mikil umferðaraukning strax í þessari viku eins og sést á myndinni sem ég tók,“ segir Kristinn. 16. ágúst 2013 14:10
Vinnufundur íbúa um endurhönnun Hofsvallagötu í dag Sérfræðingur hjá KPMG stýrir vinnufundi með íbúum um endurhönnun Hofsvallagötu í dag en áður mun fagfólk hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar kynna forsendur verkefnisins. 18. mars 2014 15:15
Fundað vegna Hofsvallagötu Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar samþykkti tillögu minnihlutans í borgarstjórn í gær um að boðað yrði til almenns íbúafundar strax á næstu dögum um breytingar á skipulagi Hofsvallagötu og framkvæmdir á götunni. 15. ágúst 2013 07:00
Fuglahús og flögg fjarlægð af Hofsvallagötu Framkvæmdir eru fyrirhugaðar á Hofsvallagötu, þar sem unnið verður samkvæmt tillögum sem gerðar voru í samráði við íbúa í Vesturbæ. 29. nóvember 2013 14:30
Ber enn merki misskilnings Hin skrautlega Hofsvallagata ber enn þess merki þegar starfsmenn Reykjavíkurborgar spúluðu málningu af götunni. 24. september 2013 21:19