Þrír slökkviliðsmenn létust sama daginn Samúel Karl Ólason skrifar 26. september 2014 22:42 Slökkviliðsmenn taka þátt í minningarathöfn vegna árásarinnar á World trade center. Vísir/AFP
Þrír slökkviliðsmenn sem unnu við björgunarstörf í New York þann 11. september þegar árásirnar voru gerðar á World trade center turnana, létust sama daginn úr krabbameini. Með einungis nokkurra klukkutíma millibili. BBC segir frá því að þúsundir einstaklinga sem unnu við björgunarstörf hafi greinst með heilsukvilla og þar á meðal krabbamein. Læknar segja þó ekki víst að veikindin megi tengja við árásirnar. http://www.bbc.com/news/world-us-canada-29381978 Slökkviliðsstjóri New York segði dauðsföll mannanna þriggja vera sársaukafulla áminningu þess að þrettán árum seinna væru slökkviliðsmenn enn að gjalda fyrir hetjulega vinnu sína. Formaður samtaka slökkviliðsmann , James Lemonda, segir að andrúmsloftið á Manhattan hafi verið eitrað þegar slökkviliðsmenn mættu fyrst á svæðið og það hafi verið það áfram í marga mánuði. Um þúsund dauðsföll hafa verið tengd við eitrað ryk eftir fall tvíburaturnanna. Þá hafa mörg hundruð slökkviliðsmanna greinst með krabbamein og margir eiga við öndunarerfiðleika að stríða. Slökkviliðið í New York segir að auk þeirra 343 slökkviliðsmanna sem létust í árásunum, hafi 89 dáið vegna veikinda. Neðra þing Bandaríkjanna sett upp neyðarsjóð til að hjálpa þeim sem berjast við veikindi sem tengja má árásunum. Löggjöf sem gerir fólki kleift að fá aðstoð rennur þó út innan tveggja ára og þingið hefur ekki tekið ákvörðun um að framlengja lögin. „Ég bið leiðtoga okkar í Washington að vera jafn hugrakkir og fólkið sem tók þátt í björgunaraðgerðunum þennan dag,“ segir James Lemonda.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira