Brooks og Gonzalez merkari menn en Abraham Lincoln Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. júní 2014 23:30 Omar Gonzalez fagnar því að komast áfram í 16 liða úrslitin. vísir/getty
Stuðningsmenn bandaríska landsliðsins í knattspyrnu eru vægast sagt ánægðir með gengi sinna manna en þeir komust upp úr dauðariðlinum, G-riðli, í dag, þrátt fyrir tap í lokaumferðinni gegn Þýskalandi. Menn beita ýmsum aðferðum til að fagna sigrum, en ein leiðin virðist vera að breyta Wikipedia-síðum leikmanna liðsins. Það gerðist bæði eftir fyrsta leikinn gegn Gana og aftur í dag eftir leikinn gegn Þýskalandi.John Brooks, þýskættaður miðvörður Bandaríkjanna, reyndist hetjan í fyrsta leiknum þegar hann skoraði sigurmarkið með skalla eftir horn á 86. mínútu. Eftir leik var búið að breyta inngangnum á Wikipedia-síðu hans, en þar stóð: „Hann er merkasti Bandaríkjamaðurinn síðan AbrahamLincoln var uppi.“ Lincoln, eins og allir vita, var 16. forseti Bandaríkjanna og lifir í minningu þjóðarinnar að eilífu fyrir að afnema þrælahald þar í landi. Hvort það hafi verið sami stuðningsmaður eða einhver annar að reyna að vera jafnfyndinn, þá var Wikipedia-síðu miðvarðarins OmarsGonzalez einnig breytt eftir tapið gegn Þýskalandi í dag. Gonzalez átti frábæran leik og var ein helsta ástæða þess að Bandaríkin fengu ekki á sig fleiri mörk, en Þjóðverjar sóttu án afláts í leiknum. Að leik loknum var skrifað í niðurlagið á Wikipedia-síðu hans: „Hann sannaði með spilamennsku sinni að hann er merkasti Bandaríkjamaður sem til er. Hann tók þann titil af John Brooks sem jafnaði við Abraham Lincoln á dögunum.“John Brooks fagnar markinu sem gerði hann að „merkari manni en Lincoln“.vísir/getty
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir Aron og félagar áfram þrátt fyrir tap Bandaríkin töpuðu fyrir Þýskalandi en komast samt áfram í 16 liða úrslit. 26. júní 2014 15:05 Cristiano Ronaldo bjargaði Bandaríkjamönnum Portúgalar og Ganverjar eru á leiðinni heim á HM í Brasilíu eftir að Portúgal vann 2-1 sigur á Gana í leik liðanna í lokaumferð G-riðils. Portúgala vantaði þrjú mörk í viðbót til að komast upp fyrir Bandaríkin og tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum. 26. júní 2014 15:04 Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ Sport Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Rændir í miðju lyfjaprófi Handbolti NFL-stjarna giftist heimsmeistara Sport Fleiri fréttir Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Sjáðu tímamótamark íslenska táningsins eftir „erfiðan“ tíma Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM „Hann var grátandi í hálfleik“ Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Viðar með stoðsendingu í stórsigri Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Abraham tryggði Aston Villa sigur eftir snilldar viðsnúning hjá Sunderland „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Van Dijk tryggði Liverpool sigur í nágrannaslagnum Skoraði fyrsta löglega rangstöðumarkið Sjáðu sigurmark Cunha, Tottenham tapa stigum og hjólhestinn hjá miðverðinum Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Arne Slot: Tapið í Meistaradeildinni gæti hjálpað Liverpool Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Sjá meira
Aron og félagar áfram þrátt fyrir tap Bandaríkin töpuðu fyrir Þýskalandi en komast samt áfram í 16 liða úrslit. 26. júní 2014 15:05
Cristiano Ronaldo bjargaði Bandaríkjamönnum Portúgalar og Ganverjar eru á leiðinni heim á HM í Brasilíu eftir að Portúgal vann 2-1 sigur á Gana í leik liðanna í lokaumferð G-riðils. Portúgala vantaði þrjú mörk í viðbót til að komast upp fyrir Bandaríkin og tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum. 26. júní 2014 15:04