Rodgers: Liverpool saknar Sturridge Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2014 13:40 Daniel Sturridge. Vísir/Getty
Daniel Sturridge hefur ekki spilað með Liverpool-liðinu síðan 31. ágúst og ennfremur ekki skorað fyrir Liverpool síðan í fyrstu umferð tímabilsins. Knattspyrnustjórinn Brendan Rodgers viðurkennir fúslega að liðið sakni síns aðalframherja. Daniel Sturridge meiddist fyrst á landsliðsæfingu í byrjun september en þegar hann var orðinn góður af þeim meiðslum þá meiddist hann á kálfa á Liverpool-æfingu. Síðan að Sturridge meiddist hefur Liverpool aðeins náð að skora sjö mörk í sex leikjum í úrvalsdeildinni og Mario Balotelli hefur aðeins náð að skora eitt mark í 11 leikjum með Liverpool og það mark kom í Meistaradeildarleik á móti Ludogorets. Liverpool náði aðeins markalausu jafntefli á heimavelli á móti Hull City um helgina sem þýðir að Liverpool-liðið er aðeins í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, níu stigum á eftir toppliði Chelsea. „Þegar þú ert í vandræðum þá veistu að þú ert með leikmenn sem getur búið til eitthvað upp úr engu. Það er hættulegt vopn og Sturridge er einn af slíkum leikmönnum okkar," sagði Brendan Rodgers í viðtali á heimasíðu Liverpool. Sturridge skoraði 24 mörk á síðustu leiktíð og Rodgers bíður eftir endurkomu hans eins og allir stuðningsmenn Liverpool. „Þegar Daniel kemur aftur inn í liðið þá kemur hann með sjálfstraust með sér. Við verðum bara að reyna að spila án hans og við erum að gera það. Við erum enn í efri hluta deildarinnar," sagði Rodgers sem er fyrir löngu farinn að draga úr væntingunum.
Enski boltinn Mest lesið Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Enski boltinn Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Handbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Fleiri fréttir Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Sjá meira