Tuttugu létust í árás í Suður-Súdan 18. apríl 2014 12:44 Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/ap
Í það minnsta 20 létu lífið og yfir 70 manns særðust í árás sem gerð var á bækistöðvar Sameinuðu þjóðanna í Suður-Súdan. Sameinuðu þjóðirnar hafa víggirtar bækistöðvar í bænum Bor, í Suður-Súdan og yfir 5000 manns hafa leitað þar skjóls. Almennir borgarar hafast þar við innan um friðargæsluliða og aðra starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, í von um að halda lífi undir stöðugri ógn stríðsátaka. Ekkert bendir til annars en að árás hóps vígamanna á bækistöðvarnar hafi verið tilefnislaus. Mennirnir klæddust borgaralegum fötum og sögðust vera mótmælendur, komnir til að skila undirskriftalista til yfirmanna á svæðinu. Þeim var því hleypt inn fyrir en hófu þá skothríð sem felldi í það minnsta 20 manns og særði yfir 70. Friðargæsluliðar urðu að grípa til vopna og tókst þeim loks að hrekja vígamennina á brott. Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna hefur hátt í milljón manna hrakist á vergang í landinu frá því að stríðsátök hófust í landinu í desember síðastliðnum, á milli stuðningsmanna forsetans og fyrrum varaforsetans. Um 250 þúsund til viðbótar hafa flúið til nágrannaríkja og búist er við að ástandið versni, enda hafa átök haldið áfram þrátt fyrir vopnahlé sem samið var um í janúar. Talið er að hátt í fimm milljónir búi við mikla neyð en hjálparstarf er erfitt vegna afskekktrar legu landsins og strjálbýlis. Árásin í Bor hefur verið gagnrýnd harðlega, þar sem bækistöðvar Sameinuðu þjóðanna eigi að vera friðhelgar. Öryggi hefur verið hert í kjölfar árásarinnar og yfirmenn hafa sent út skýr skilaboð um að hugsanlegir árásarmenn verði ekki teknir neinum vettlingatökum.
Mest lesið Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Innlent Bíll konunnar sást á upptöku Innlent Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Innlent Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Innlent „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Innlent Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Innlent Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Innlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Sjá meira