Fimm æði sem gripu heiminn á árinu Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 23. desember 2014 12:30 Lag eftir söngkonuna Beyoncé Knowles var upphafið að sjálfsmyndaæðinu. vísir/Getty
Hvert einasta ár grípur um sig eitthvert æði eða tíska sem allur heimurinn virðist gleypa við. Hver man ekki eftir því þegar allir voru að planka? Nú eða Harlem Shake og Macarena? Í ár voru það sjálfsmyndatökur og afturendar sem tröllriðu heiminum.I woke up like this Lagið Flawless eftir söngkonuna Beyoncé Knowles varð kveikjan að röð sjálfsmynda á samfélagsmiðlum á árinu. Lína úr laginu, I Woke Up Like This, var yfirskrift sjálfsmyndanna og kepptust þekktir og óþekktir einstaklingar við að birta myndir af sér nývöknuðum, ómáluðum og ótilhöfðum. Sjálfsmyndaáskoruninni var ætlað að vekja athygli á óraunhæfum útlitskröfum.Selfie-stöng gerir allar sjálfsmyndatökur auðveldari.nordicphotos/getty„Selfie“-stöngin „Selfies“ eða sjálfsmyndir urðu enn meira áberandi eftir tilkomu snjallsímans. Það getur hins vegar oft reynst erfitt að smella af sjálfsmynd með símanum án þess að sjáist í öxl og upphandlegg viðkomandi. „Selfie“-stöngin ræður bót á því máli og gerir sjálfsmyndatökur auðveldar.Omaggio-vasar Röndóttu vasarnir frá Kähler áttu gífurlegum vinsældum að fagna á landinu. Afmælisútgáfa vasans með handmáluðum messing-línum gerði mikla lukku og margir aðdáendur danska fyrirtækisins Kähler reyndu að tryggja sér eintak. Örtröð skapaðist fyrir utan verslanir þegar áhugasamir kaupendur hugðust verða sér úti um eintak afmælisvasans og sölusíður vefverslana önnuðu ekki eftirspurn.Leikkonan Lindsay Lohan var meðal þeirra sem tóku þátt í áskoruninni hjá Jimmy Fallon.Nordicphotos/GettyÍsfötuáskorunin Á sumarmánuðum var ísfötuáskorunin áberandi á samfélagsmiðlum og í fréttum. Markmið áskorunarinnar var að vekja athygli á MND-sjúkdómnum og safna fjármagni til frekari rannsókna á honum. Vel tókst til og gríðarlegur fjöldi einstaklinga og fyrirtækja tók þátt og birti myndbönd af sér að hvolfa ísmolum yfir höfuð sér í nafni áskorunarinnar.Kopar og marmari Það má með sanni segja að kopar og marmari hafi verið með því vinsælasta í innanhússhönnun á árinu 2014. Kertastjakar, skálar, borð og vasar, allt var undirlagt í kopar og marmara. Margir gripu til þess ráðs að gera eigin útfærslur meðal annars með því að spreyja gamla kertastjaka með koparlit og borðplötur voru klæddar með marmarafilmum.Afturendar voru áberandi á árinu.nordicphotos/GettyAfturendar Á árinu voru afturendar hinna ýmsu stjarna áberandi. Hvort sem það var í tónlistarmyndböndum eða á forsíðum tímarita þá virtist tími afturendans runninn upp. Í flestum tilfellum var um kvenkyns stjörnur að ræða en í tónlistarmyndböndum Nicki Minaj, Jennifer Lopez og Beyoncé Knowles var bakhlutamiðað þema og auk þess vakti forsíðumynd og myndaþáttur tímaritsins PAPER með myndum af Kim Kardashian heimsathygli.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira