Syngur með Alexander Ryback í HM lagi Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 12. desember 2014 08:00 Jón hlakkar mikið til þess að fara út til Katar til að taka þátt í flutningi HM-lagsins. Vísir/Valli „
Þetta kom allt voðalega skjótt upp. Ég var fríi í Orlando með fjölskyldunni þegar haft var samband við mig og ég beðinn um að taka þátt í þessu. Það var á föstudegi og á mánudeginum vorum við komin til Madríd,“ segir Jón Jónsson tónlistarmaður. Hann var óvænt beðinn um að syngja í HM-laginu fyrir heimsmeistaramót karla í handbolta sem fer fram í Katar í janúar. „Ísland kemst óvænt inn á HM þarna á föstudeginum og svona tíu mínútum síðar fékk ég tölvupóst frá einhverri píu í LA sem er tónlistarráðgjafi og bað mig að vera með. Þá hafði hún einhvern veginn fundið mig á netinu og fannst ég kjörinn í þetta verkefni,“ segir Jón. Lagið heitir Live it, Win it og verður frumflutt þann 18. desember. „Ég var svo bara mættur til Madríd þarna á mánudeginum, allt í einu kominn í eitthvað risa stúdíó og búinn að eignast tvo nýja vini, einhvern Svía og Frakka,“ segir hann, en í laginu syngja fulltrúar frá hverri þjóð sem tekur þátt í mótinu eða alls 24. „Þetta eru allt stjörnur í sínum löndum og gaman að segja frá því að þarna var mættur enginn annar en Alexander Ryback fyrir hönd Hvíta-Rússlands. Það vita ekki allir að hann er Hvítrússi en ekki Norðmaður,“ segir Jón, sem heldur út til Katar í janúar til þess að taka þátt í flutningi á laginu við setningarathöfn mótsins. „Það verður áhugavert að fara þangað, þetta er allt annað en það sem við þekkjum, enda ein ríkasta þjóð heims miðað við höfðatölu,“ segir hann. Það verður einnig sérstaklega spennandi fyrir popparann að fara út, þar sem mágur hans er að spila á mótinu. „Þeim úti fannst það alveg hreint magnað, að maður tvíburasystur minnar (Ásgeir Örn Hallgrímsson) væri í liðinu,“ segir Jón. Það er annars nóg að gera hjá Jóni þessa dagana því hann gaf út plötuna Heim á dögunum og er á fullu að undirbúa tónleika í Austurbæjarbíói 19.desember.
Mest lesið Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Bíó og sjónvarp Vægar viðreynslur en engir pervertar Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Lífið Fleiri fréttir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Sjá meira