Lífið

Orðrómurinn er ekki réttur

Catherine Heigl segist ekki vera erfið í samstarfi.
Catherine Heigl segist ekki vera erfið í samstarfi.
Catherine Heigl segir það ekki rétt að það sé erfitt að vinna með henni. Hún viðurkennir samt að hafa gert mistök í samskiptum sínum við samstarfsmenn sína.

Þessi fyrrverandi leikkona í sjónvarpsþáttunum Grey's Anatomy var viðfangsefni greinar í tímaritinu The Hollywood Reporter þar sem því var haldið fram að það væri erfitt að vinna með henni og það væri ekki þess virði að ráða hana í vinnu.

Hægt var að spyrja Heigl spjörunum úr á Facebook um helgina og þar sagði hún þennan orðróm vera „mjög dónalegan“ og kveðst alls ekki vera erfið í samskiptum.

„Mér finnst ekkert eins óþægilegt og að særa einhverja manneskju og ég gæti aldrei gert það viljandi. Auðvitað hef ég gert mistök eins og aðrar manneskjur og sagt eitthvað í hálfkæringi en ég reyni alltaf að bæta fyrir slíkt,“ sagði hún.

Heigl hætti í Grey's Anatomy árið 2010 eftir deilu við stjórnendur þáttanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.