Lífið

Jennifer Lawrence keypti villu

Jennifer Lawrence hefur keypt sér glæsihýsi.
Jennifer Lawrence hefur keypt sér glæsihýsi. Vísir/Getty
Jennifer Lawrence hefur fest kaup á glæsivillu í Los Angeles sem var áður í eigu söngkonunnar Jessicu Simpson.

Húsið stendur í hverfinu Beverly Crest og kostaði rúmar átta milljónir dala, eða um einn milljarð króna, að sögn blaðsins The Los Angeles Times.

Hunger Games-leikkonan keypti eignina af Sydney Holland, kærustu fjölmiðlamógúlsins Sumners Redstone, sem keypti hana af Simpson í fyrra fyrir tæpar 800 milljónir króna.

Í glæsivillunni eru fimm svefnherbergi, sex baðherbergi, tjörn og sundlaug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.