Erlent

Laus úr einangrun

Hjúkrunarfræðingnum Kaci Hickox var haldið í einangrun yfir helgina.
Hjúkrunarfræðingnum Kaci Hickox var haldið í einangrun yfir helgina. vísir/afp
Hjúkrunarfræðingurinn Kaci Hickox losnaði úr einangrun í gær, en henni var haldið í einangrun á spítala í New Jersey í Bandaríkjunum eftir að hún kom heim frá Vestur-Afríku síðastliðinn föstudag vegna gruns um að hún væri smituð af ebólu.

Hickox hefur hótað málshöfðun vegna innilokunarinnar en hún sagði að einangrunin hefði verið ómannúðlega. Hickox sagði jafnframt að sér hefði liðið eins og glæpamanni miðað við þær móttökur sem hún fékk er hún kom til Bandaríkjanna.

Hún sýndi engin einkenni ebólu og fór í tvær rannsóknir en greindist ekki með ebólu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×