Vilja fund með leiðtoga Hong Kong Freyr Bjarnason skrifar 1. október 2014 07:00 Óeirðalögreglan beitir piparúða gegn mótmælendum eftir að þúsundir þeirra höfðu lokað aðalgötunni sem liggur að miðstöð fjármálahverfisins í Hong Kong. Mótmælendurnir notuðu regnhlífar til að verjast úðanum. Fréttablaðið/AP
Mótmælendur í Hong Kong hafa krafist þess að leiðtogi borgarinnar fundi með þeim. Ef hann vill það ekki hafa þeir hótað frekari mótmælaaðgerðum. Leiðtoginn, Leung Chun-ying, sagði í gær að Kínverjar ætluðu ekki að víkja frá ákvörðun sinni um að takmarka kosningaúrbætur í borginni, sem er miðpunktur fjármála í Asíu. „Ef Leung Chun-ying mætir ekki á Almenningstorgið fyrir miðnætti held ég að óumflýjanlegt sé að fleira fólk komi út á göturnar,“ sagði Alex Chow, talsmaður nemendanna. Hann sagði að þeir væru að íhuga ýmsa kosti í stöðunni, þar á meðal að mótmæla á stærra svæði, krefjast verkfalls verkamanna og hugsanlega setjast að í byggingu í eigu stjórnvalda. Búist er við auknum fjölda mótmælenda á þjóðhátíðardegi Kínverja í dag og talið er að þeir verði í heildina um 100 þúsund. Xi Jinping, forseti Kína, hét því í þjóðhátíðarræðu sinni að styðja þétt við bakið á hagsæld og stöðugleika í Hong Kong. Hann sagði að stjórnvöld í Peking, höfuðborg Kína, teldu að Hong Kong myndi „skapa enn betri framtíð fyrir hina stóru fjölskyldu móðurlandsins“. Stjórnvöld í Kína hafa fordæmt mótmælin í Hong Kong, sem mennta- og háskólanemendur hafa staðið fyrir, og segja þau ólögleg. Enn sem komið er hafa þau ekki gripið inn í og hafa því látið hin hálf-sjálfstæðu stjórnvöld í Hong Kong takast á við vandann. Eftir að Leung Chun-ying hafnaði kröfum nemenda dró úr vonum um skjótfengna lausn á deilunni, sem hefur staðið yfir í sex daga. Mótmælendur hafa lokað götum víða í Hong Kong og hefur þurft að loka mörgum skólum og skrifstofum af þeim sökum. Lögreglan notaði táragas og piparúða á mótmælendur um síðustu helgi en hefur ekki beitt sömu aðferðum síðan þá, enda urðu þær síður en svo til að draga úr mótmælunum. „Við erum ekki hrædd við óeirðalögregluna, við erum ekki hrædd við táragas, við erum ekki hrædd við piparúða. Við förum ekki í burtu fyrr en Leung Chun-ying segir af sér. Við ætlum ekki að gefast upp, við munum þrauka áfram,“ hrópaði Lester Shum, einn af leiðtogum mótmælenda, yfir mannfjöldann.Samkomulag um „eitt land, tvö kerfi“ Mótmælendurnir vilja að dregin verði til baka ákvörðun kínverskra stjórnvalda um að dómnefnd þurfi að samþykkja alla frambjóðendur í fyrstu beinu kosningunum í Hong Kong sem eru fyrirhugaðar árið 2017. Kínverjar tóku við stjórn Hong Kong af Bretum árið 1997 og kvað samkomulag þeirra á um „eitt land, tvö kerfi“. Það átti að tryggja þessari fyrrverandi nýlendu Breta aðskilið laga- og hagkerfi í anda vestrænna ríkja.
Mest lesið Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Vaknaði og barnið var horfið Innlent Fleiri fréttir Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Sjá meira