Innlent

Segir eiginkonu sína hafa svipt sig lífi

Hanna Ólafsdóttir skrifar
Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana í Breiðholti á laugardag situr nú í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.
Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið konu sinni að bana í Breiðholti á laugardag situr nú í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. Fréttablaðið Stefán
Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana í Stelkshólum á laugardag, heldur því fram að konan hafi tekið eigið líf. Hann hefur staðfastlega haldið fram sakleysi sínu í skýrslutökum hjá lögreglu.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu var þrengt að öndunarvegi konunnar svo hún hlaut bana af. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var notast við einhversskonar band eða snæri við verknaðinn.

Farið hefur verið fram á geðmat yfir manninum samkvæmt venju í svo alvarlegu sakamáli, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur hann ekki átt við alvarleg geðræn veikindi að stríða.

Barnaverndarnefnd hefur unnið að því að koma börnum hjónanna í vistun hjá vinafólki, þar sem engir nánir ættingjar þeirra búa hér á landi. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur maðurinn haft þungar áhyggjur af hvar börn hans eru niðurkomin og það sé mikill léttir að þeim verði komið fyrir hjá vinum. Bróðir konunnar er á leið til landsins frá Póllandi.

Vinir og kunningjar hjónanna sem Fréttablaðið hefur talað við eru allir á sama máli um að ekkert hafi bent til þess að eitthvað óeðlilegt ætti sér stað í sambandinu. Er konunni lýst sem fyrirmyndar móður og þau hjónin hafi lagt mikið upp úr fjölskyldulífi.

Verði maðurinn fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsisvist. Lögreglan vinnur nú að rannsókn málsins.

Málinu þykir svipa til Hamraborgarmálsins svokallaða, en árið 2006 dæmdi Hæstiréttur Magnús Einarsson í 11 ára fangelsi fyrir að hafa orðið konu sinni að bana á heimili þeirra í nóvember 2004.

Hæstiréttur þyngdi fangelsisdóm héraðsdóms yfir Magnúsi um tvö ár.

Magnús var ákærður fyrir að bregða þvottasnúru um háls Sæunnar á heimili þeirra í Hamraborg í Kópavogi og þrengja síðan að þannig að hún lést af völdum kyrkingar. Börn þeirra tvö voru sofandi í íbúðinni á sama tíma. Magnús játaði að hafa banað konu sinni og sagði ástæðuna hafa verið afbrýðisemi.


Tengdar fréttir

Níu ára fangelsi fyrir manndráp

Magnús Einarsson var dæmdur í 9 ára fangelsi í dag fyrir að bana 25 ára gamalli eiginkonu sinni og barnsmóður, Sæunni Pálsdóttur. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness.Atburðurinn átti sér stað á heimili hjónanna í Kópavogi í nóvember á síðasta ári. Magnús brá þvottasnúru um háls konu sinnar og þrengdi að með þeim afleiðingum að hún lést af völdum kyrkingar.

Maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald

Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. október næstkomandi.

11 ára fangelsi fyrir að myrða eiginkonu sína

Hæstiréttur dæmdi í dag Magnús Einarsson í ellefu ára fangelsi fyrir að verða Sæunni Pálsdóttur eiginkonu sinni að bana í Hamraborg í Kópavogi í nóvember árið 2004. Hæstiréttur þyngdi dóms héraðsdóms um tvö ár.

Heyrði kvalafullt öskur

Nágranni Sæunnar Pálsdóttur segist hafa heyrt skelfingaröskur og vein í konu á þeim tíma sem morðið á henni á að hafa átt sér stað. Óhljóðin hafi síðan hætt skyndilega eftir þungan dynk. Þetta kom fram í vitnisburði nágrannans við aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær.

Dæmdur í níu ára fangelsi

Magnús Einarsson var dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að kyrkja Sæunni Pálsdóttur, eiginkonu sína, með þvottasnúru í íbúð þeirra í Kópavogi í byrjun nóvember í fyrra. Gæsluvarðhald frá 1. nóvember kemur til frádráttar refsingunni.

Dómur þyngdur í Hæstarétti vegna morðs í Hamraborg

Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir Magnúsi Einarssyni, sem ákærður var fyrir að hafa myrt eiginkonu sína, Sæunni Pálsdóttur, að heimili þeirra að Hamraborg í Kópavogi 1. nóvember 2004. Héraðsdómur hafði dæmt hann í níu ára fangelsi en Hæstiréttur þyngdi dóminn í ellefu ár að kröfu ákæruvaldsins sem áfrýjaði dómnum.

Talinn hafa kyrkt konuna

Börn hjónanna, tveggja og fimm ára voru á heimilinu, en þeim hefur verið komið í viðeigandi umönnun hjá barnaverndaryfirvöldum.

„Virkilega vinalegt og gott fólk“

Nágranni hjónanna í Stelkshólum í Breiðholti segir allt hafa verið með kyrrum kjörum á stigaganginum í gærkvöld. Hann talaði við hjónin síðdegis í gær og sagði ekkert benda til þess að harmleikur væri yfirvofandi.

„Við erum að svíkja þessi börn“

"Þetta er hópur sem skólakerfið er að svíkja“, segir Þórður Kristjánsson, skólastjóri Seljaskóla um börn sem eru komin í fíkniefnaneyslu og að úrræði skorti alveg til að koma börnunum til hjálpar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×