Innlent

Heyrði kvalafullt öskur

mNágranni Sæunnar Pálsdóttur segist hafa heyrt skelfingaröskur og vein í konu á þeim tíma sem morðið á að hafa átt sér stað. Óhljóðin hafi síðan hætt skyndilega eftir þungan dynk. Þetta kom fram í vitnisburði nágrannans við aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær. Magnús Einarsson, sem ákærður er fyrir að hafa banað Sæunni eiginkonu sinni, sagðist hafa verið að hjálpa henni að deyja þar sem hún hafi verið kvalin af þunglyndi og samviskubiti yfir meintu framhjáhaldi. Hann sagðist ekki kannast við öskur og læti sem nágranninn taldi sig hafa heyrt. Börn þeirra hafi þannig sofið vært meðan manndrápið hafi átt sér stað. Sálfræðingur sem tók viðtöl við Magnús segir ekkert hafa komið fram sem dragi sakhæfi Magnúsar í efa. Jafnframt sagði sálfræðingurinn fyrir dómi í gær að svo virtist sem Magnús hefði misst stjórn á gjörðum sínum og í kjölfarið banað konu sinni. Í rannsókn sálfræðingsins á Magnúsi hafi líka komið fram tilhneiging hjá honum til þess að geta í eyðurnar í vitnisburði sínum þegar hann hafi ekki verið viss um hvernig málin hafi verið. Hann hafi munað atburði næturinnar nokkuð skýrt, en skapað síðan sjálfur inn í eyðurnar þegar atburðarásin hafi vafist fyrir honum. Það kom einnig fram í máli sálfræðingsins að Magnús hafi verið afskaplega háður konu sinni. Hann hafi þannig átt erfitt með að þola það þegar hann komst að því að kona hans hafi verið honum ótrú. Lögreglumenn sem handtóku Magnús á morðstað segja hann hafa greint þeim frá því að einungis hafi verið um aðstoð við dráp að ræða, þar sem kona hans hafi viljað deyja. Magnús sagðist hafa átt erfitt í kjölfarið og fundið fyrir miklum andlegum sársauka við það að finna fyrir fjölskyldu sinni tvístrast í sundur. Sérstaklega hafi honum fundist erfitt að hugsa til þess að samband hans við börn sín myndi glatast. Frá upphafi hefur verið vitað að Magnús drap konu sína sjálfur, en hann játaði verknaðinn skömmu eftir að hafa framið hann. Magnús heldur enn tengslum við börn sín en þau koma í heimsókn til hans einu sinni í mánuði á Litla-Hraun, þar sem hann er í gæsluvarðhaldi. Börnin eru í umsjá foreldra Sæunnar .


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×