Talar í auknum mæli um mikilvægi kvenleiðtoga Freyr Bjarnason skrifar 29. september 2014 10:30 Hugsanlega munu áherslur Hillary Clinton breytast ef hún býður sig aftur fram til forseta Bandaríkjanna. Fréttablaðið/AP
Þegar Hillary Rodham Clinton barðist við Barack Obama um hvort þeirra myndi bjóða sig fram fyrir hönd Demókrataflokksins til forseta Bandaríkjanna árið 2008 lagði hún áherslu á reynslu sína, samkeppnishæfni og skipulagshæfni. Ef hún ætlar aftur að reyna við forsetaembættið árið 2016 eru líkur á því að áherslur hennar verði öðruvísi, þ.e., að meginþemað snúist um að hún verði fyrsti kvenforseti Bandaríkjanna. Clinton, sem er núverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ætlar snemma á næsta ári að tilkynna hvort hún ætlar að bjóða sig aftur fram í forsetaembættið. Að undanförnu hefur hún í ræðum sínum talað fyrir styrk kvenna og auknu hlutverki kvenna í hagkerfi og stjórnmálum Bandaríkjanna. Í ræðu á hinni árlegu Clinton Global-ráðstefnu og við önnur tilefni hefur hún lagt áherslu á að umskipti þurfi að verða og að nauðsyn fyrir kvenleiðtoga sé mikil. Þessi atriði gætu átt vel við í mögulegri kosningabaráttu hennar þar sem atkvæði kvenna yrðu afar mikilvæg. „Ekki láta neinn segja við ykkur að þið séuð að vinna kvennastarf,“ sagði Clinton á ráðstefnu kvenleiðtoga á vegum Demókrataflokksins. „Ekki láta neinn setja ykkur á varamannabekkinn.“ Á Clinton-ráðstefnunni talaði Bill Clinton, eiginmaður Hillary og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, til Michelle Bachelet, forseta Síle, um þær áskoranir sem kvenkyns leiðtogar standa frammi fyrir. Aðrir ræðumenn voru Mary Barra, forstjóri General Motors, og Ginni Rometty, forstjóri IBM, en þær eru fyrstu kvenkyns stjórnendur þessara fyrirtækja. Hillary Clinton hefur einnig barist fyrir launajafnrétti, velferðarmálum barna og hækkun lágmarkslauna. Þannig hefur hún um leið minnt áheyrendur sína á að tveir þriðju hlutar þeirra sem lægstar tekjur hafa eru konur. Þegar hún sóttist eftir forsetaembættinu árið 2008 var hún kynnt til sögunnar sem sterkur leiðtogi í anda Margrétar Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Síðar, þegar hún hafði tapað naumlega fyrir Obama í kosningum Demókrataflokksins, fékk hún mikið lof fyrir frammistöðu sína. Í ræðu sem hún hélt, þar sem hún hugsanlega átti við kynjabaráttuna, sagðist hún ekki hafa brotið glerþak Hvíta hússins en í staðinn skilið eftir 18 milljón sprungur í því. Vísaði hún þar í atkvæðafjöldann sem hún hlaut í forkosningunum. Sex árum síðar er eitt helsta forgangsmál hennar hjá Clinton-stofnuninni verkefni sem heitir „Engin þök“ og snýst um eflingu kvenna úti um allan heim.
Mest lesið Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Stundum koma upp atvik“ Innlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira