Lyfti bikarnum og ég sat heima með pitsu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. júlí 2014 06:30 Christoph Kramer segist ekkert muna eftir úrslitaleiknum vegna höfuðhöggsins. fréttablaðið/getty
Christoph Kramer átti sannarlega eftirminnilegan dag á sunnudag, er Þýskaland varð heimsmeistari í knattspyrnu eftir sigur á Argentínu, 1-0, í framlengdum úrslitaleik. Kramer var óvænt í byrjunarliði Þjóðverja vegna meiðsla Sami Khedira en þurfti svo að fara af velli um miðjan fyrri hálfleikinn eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg. Kramer er uppalinn hjá Leverkusen en var í láni hjá Bochum í þýsku B-deildinni frá 2011 til 2013. Hólmar Örn Eyjólfsson kom til félagsins á sama tíma og voru þeir herbergisfélagar í þau tvö ár sem Kramer var hjá Bochum. „Það var mjög gaman að sjá hann lyfta sjálfum HM-bikarnum á meðan ég sat heima og borðaði pitsu,“ sagði Hólmar Örn og hló. Hann er samningslaus sem stendur og er að skoða sína möguleika. „Þetta var mjög góður tími hjá Bochum, þó svo að ég hefði kannski viljað spila meira en ég gerði. En þau tilboð sem ég hef fengið hafa ekki verið nógu spennandi til að taka þeim strax. Ég ætla því að vera þolinmóður og bíða fram eftir sumri.“ Hann ber Kramer vel söguna og segir að sér hafi ekki komið á óvart að sjá hann í þýska landsliðshópnum. „Það var hins vegar mjög fyndið að sjá að hann var í byrjunarliðinu. Hans fyrsti byrjunarliðsleikur með landsliðinu og það er í úrslitaleik HM. En hann er rosalega góður leikmaður – með góða tækni og mikla hlaupagetu. Hann á eftir að ná mjög langt,“ segir Hólmar. Kramer stýrði miðjuspili Bochum ásamt Leon Goretzka, nítján ára leikmanni sem var í láni hjá félaginu frá Schalke, þar sem hann er nú. „Þeir voru báðir frábærir hjá okkur og eiga eftir að láta mikið að sér kveða,“ bætir Hólmar við. Hólmar fagnaði árangri Þjóðverja mjög, sem og karl faðir hans, Eyjólfur Sverrisson, sem spilaði lengi sem atvinnumaður í Þýskalandi. „Við vorum hæstánægðir og Þýskaland átti þetta skilið, enda langbesta liðið í gegnum alla keppnina.“
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Dagskráin: Arsenal og Liverpool í Meistaradeildinni og NFL byrjar Sport Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Fleiri fréttir Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fyrsti sigur Aston Villa á tímabilinu kom í Meistaradeildinni Stór varða í langþráðri endurkomu Patriks: „Eitt skref í einu“ Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Hjartaaðgerð McTominay gekk vel Mourinho fékk úðara að gjöf Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Treyjur Liverpool taka breytingum Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Dagskráin í dag: Meistaradeildin hefst og Hákon er þar í eldlínunni Árni Gautur heiðraður af ÍA Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Sjá meira