Lið íbúanna í borginni á hraðri uppleið Kristinn Páll Teitsson skrifar 5. júní 2014 06:30 Fólkið elskar nýja félagið enda er það félag fólksins í Salzburg Mynd/Austria Salzburg
Hækkandi miðaverð hefur gert það að verkum að sífellt er verið að stofna ný fótboltafélög fyrir hinn almenna stuðningsmann. Þessi félög eru yfirleitt í eigu stuðningsmannanna í baráttu við áhrif kapítalismans á fótbolta. Áhrif eigenda liðanna eru orðin ógnvægileg og geta þeir eftir geðþótta tekið ákvarðanir um breytingar á heildinni sem sögufræg íþróttalið mynda. Nýlegt dæmi er hegðun Vincents Tan, eiganda Cardiff, sem breytti merki og einkennislitum liðsins úr bláu í rautt þrátt fyrir óánægju stuðningsmanna.Fimm deildir á níu árum Hugmyndin um að fótbolti sé íþrótt verkamannsins er sífellt að fjarlægjast og eru leikvellir þess í stað að fyllast af VIP-stúkum. Stuðningsmenn hafa í sumum löndum tekið til sinna ráða og ættu margir stuðningsmenn Manchester United að kannast við FC United – stofnað í andstöðu við núverandi eigendur félagsins, Glazer-fjölskylduna, og spilar klúbburinn í hinum upprunalegu litum United, gulum og grænum. Þá hafa einnig verið stofnaðir minni klúbbar út frá stærra félagi, ætlaðir til þess að leikmenn sem fá ekki tækifæri geti haldið áfram að spila saman fótbolta. Það þarf ekki að fara langt til þess að sjá dæmi um slíkt. Knattspyrnufélag Vesturbæjar, KV, var stofnað fyrir tíu árum en er að leika í fyrsta sinn í fyrstu deild. Aðeins einni deild fyrir neðan KR sem þeir leigja völl af og eru í góðu samstarfi við. Einnig eru til þau félög sem eru stofnuð í ljósi þess að félaginu var einfaldlega kippt úr sambandi. Þeir sem hafa fylgst með enska boltanum í lengri tíma muna eflaust eftir klúbbnum Wimbledon sem Hermann Hreiðarsson lék með í eitt tímabil. Félagið var stofnað 1889 en árið 2004 var félagið fært til Milton Keynes þar sem Milton Keynes Dons var stofnað. Í þeirra tilviki voru afrek Wimbledon einfaldlega þurrkuð út, þar á meðal sigur í enska bikarnum vorið 1988. Í því tilviki ákváðu stuðningsmenn Wimbledon að stofna nýtt félag, Wimbledon AFC og halda stuðningi sínum við það. Félagið hefur náð að vinna sig upp um fimm deildir á níu árum og situr nú í fjórðu deild enska fótboltans.Ekki einsdæmi Saga Wimbledon AFC er ekki einsdæmi um félög sem voru stofnuð í ljósi ákvarðana eigenda. SV Austria Salzburg var stofnað árið 1933 með sameiningu tveggja liða og varð eina liðið í héraðinu. Lengi vel var árangurinn slakur og vannst fyrsti meistaratitillinn ekki fyrr en árið 1994, sama ár og liðið tapaði í úrslitum Evrópubikarsins. Því fylgdu tveir meistaratitlar á næstkomandi þremur tímabilum, gullaldartímabili SV Austria Salzburg. En Adam var ekki lengi í paradís. Árið 2005 keypti orkudrykkjafyrirtækið Red Bull félagið og voru miklar breytingar fram undan á félaginu sem íbúar Salzburg þekktu. Red Bull tilkynnti að breytinga væri að vænta. Nýjar treyjur, nýjar stuttbuxur, nýtt nafn, ný stjórn og nýtt þjálfaralið. Red Bull lagði áherslu á að hér væri verið að stofna lið með enga sögu á bak við sig. Forráðamenn Red Bull gengu jafnvel svo langt að skrifa það í sögu félagsins áður en austurríska knattspyrnusambandið skipaði þeim að bæta inn í fyrri sögu félagsins.Keyptu einfaldlega félagið Við stofnun félagsins var fyrrverandi einkennislitur þess, fjólublár, tekinn úr öllu sem tengdist félaginu. Í stað þess að gera litlar breytingar breyttu þeir grunnstoðum félagsins. Þetta er hluti af markaðsherferð Red Bull þegar kemur að íþróttum. Í stað þess að auglýsa framan á búningum líkt og Coca Cola gerir er hugmynd fyrirtækisins að kaupa einfaldlega félagið og gera orkudrykkinn að einkennismerki þess. Er það auðsjáanlegt á leikvelli Red Bull Salzburg þar sem auglýsing orkudrykksins er það eina sem augun sjá. Undir nýjum merkjum hefur nýtt gullaldartímabil hafist í Salzburg. Á aðeins níu árum hefur félagið unnið deildina fimm sinnum og tvisvar unnið bikarkeppnina. Þá vann liðið stórsigur á Ajax í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í ár, samanlagt 6-1. Ekki verður Red Bull sakað um að ná ekki árangri eftir að hafa keypt félagið.Aðgerðir stuðningsmanna Að fordæmi klúbba líkt og AFC Wimbledon og FC United ákváðu stuðningsmenn Salzburg að stofna nýtt félag. Félagið var stofnað nokkrum mánuðum eftir myndun Red Bull Salzburg og var einkennismerki liðsins augljóst. Liðið var skírt SV Austria Salzburg og einkennislitur þess fjólublár. Liðið byrjaði í kjallara austurrísku deildarkeppninnar, í sjöundu deild, og spilaði sinn fyrsta leik árið 2006. Í deild þar sem örfáir mættu á leiki var nýtt félag komið í myndina sem spilaði á litlum velli sem tekur aðeins 1600 manns, en alltaf var uppselt. Óhætt er að segja að árangurinn hafi verið vonum framar. Liðið vann sig upp um fjórar deildir á fjórum árum og tapaði aðeins sjö leikjum á þeim tíma. Liðið situr í efsta sæti Regionalliga West, þriðju efstu deildar, eftir að hafa farið taplaust í gegnum fyrstu 28 leiki tímabilsins. Liðið er nú í umspili um sæti í B-deildinni og gæti ævintýrið verið að taka algjörleg nýja stefnu. Aðeins átta árum frá stofnun gæti félagið komist upp um fimmtu deildina á átta árum, upp í B-deild, og hafið atlögu að deildinni sem þeir þekktu á árum áður, sjálfri úrvalsdeildinni. Þar mun liðið svo berjast við gamlan vin, nú óvin, Red Bull Salzburg.
Fótbolti Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Enski boltinn Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Gandálfur hinn grái“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Fiorentina tapaði fyrir meisturunum Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Vildi ekki peninginn Mourinho mætir Real Madrid aftur eftir ævintýralegan sigur Benfica Brann slapp inn í umspilið eftir hjálp frá öðrum velli Mourinho bað Arbeloa afsökunar á fagnaðarlátunum Hvaða lið gætu mæst í umspili og sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar? Sjáðu markaflóðið í Meistaradeildinni Fékk þjálfarann til að dansa við sig í miðjum leik Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Sjá meira