Krafa í Svíþjóð um að ekki verði hægt að þagga niður í börnum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 10. mars 2014 00:00 120 af 296 börnum á Íslandi, sem urðu vitni að heimilisofbeldi í tengslum við útköll lögreglu frá miðjum september 2011 til maíloka 2013, fengu áfallameðferð. Vísir/E.Ól
Jafnaðarmenn í Svíþjóð þrýsta nú á ríkisstjórnina um að breyta lögum um vitnisburð. Lögmenn og saksóknarar segja það vandamál að foreldrar sem eru ákærðir geti komið í veg fyrir að börn þeirra, sem ekki eru málsaðilar, geti borið vitni gegn þeim. Sé barnið mjög ungt ákveður forráðamaður þess hvort það ber vitni, að því er segir í frétt á vef Dagens Nyheter. Þar hefur verið greint frá mörgum tilvikum þar sem foreldri, sem hefur beitt systkini barnsins ofbeldi, hefur getað komist hjá refsingu með því að koma í veg fyrir vitnisburð barnsins. Samtök um réttindi barna í Svíþjóð, Bris, gagnrýna í skýrslu til Sameinuðu þjóðanna hvernig hægt er að þagga niður í röddum barna í réttarsal. Framkvæmdastjóri Bris, Kattis Ahlström, segir það ofbeldi í sjálfu sér að koma í veg fyrir að barn vitni gegn foreldri sem hefur misþyrmt fjölskyldumeðlim. Börn frá heimilum þar sem ofbeldi er beitt lifi undir gríðarlegum þrýstingi. Mikið þurfi að koma til svo að þau þori að bera vitni. Sé komið í veg fyrir það margfaldist skaðinn. Umboðsmaður barna á Íslandi, Margrét María Sigurðardóttur, tekur undir að það geti verið erfitt fyrir barn sem verður vitni að ofbeldi á heimili sínu að bera vitni gegn foreldri. Æskilegt sé að skipa þeim börnum sérstakan réttargæslumann. „Barni er heimilt að bera vitni ef það vill það. Að sjálfsögðu er alltaf hætta á því að barn verði fyrir þrýstingi frá foreldrum um að bera ekki vitni í málum sem varða heimilisofbeldi. Þrýstingurinn getur þó líka verið í hina áttina. Börn geta því lent í mikilli tryggðarklemmu við þessar aðstæður, þar sem þeim þykir vænt um foreldra sína. Er því mikilvægast í þessum málum, eins og öðrum, að hafa að leiðarljósi það sem er barninu fyrir bestu,“ segir Margrét.
Mest lesið Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Sjá meira