Curitiba-borg gæti misst HM-leikina sína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2014 11:45 Jerome Valcke á Baixada-leikvanginum í Curitiba-borg Vísir/NordicPhotos/Getty
Jerome Valcke, framkvæmdastjóri FIFA, alþjóða knattspyrnusambandsins, hefur miklar áhyggjur af stöðu mála í uppbyggingu Baixada leikvangsins í Curitiba-borg í Brasilíu. Valcke er nú í heimsókn í Brasilíu til að skoða stöðuna í undirbúningi Brasilíumanna fyrir HM í fótbolta sem fer fram í landinu í sumar. Valcke sagði að menn í Curitiba væru orðnir miklu meira en seinir. Hann hefur samt trú á því að vinnan klárist nógu snemma fyrir heimsmeistarakeppnina en til að svo verði þurfi menn að gefa í. Valcke talaði um að Brasilíumenn hafi frest til 18. febrúar til að sýna fram á að leikvangurinn í Curitiba verði klár í tæka tíð. Ef ekki þá þarf hugsanlega að finna nýjan leikstað fyrir þá leiki sem eiga fara fram á vellinum. Átta lönd eiga að spila á vellinum og slík breyting myndi eflaust kalla á fjölda annarra breytinga í skipulagningu mótsins. Níutíu prósent vinnunnar er að baki en verkið hefur tafist vegna vandamála staðarliðsins, Atletico Paranaense, að útvega pening til framkvæmdanna. Arena da Baixada er einn af sex leikvöngum sem eru enn ekki tilbúnir en staðan er langverst í Curitiba-borg sem er í suður Brasilíu. Baixada-leikvangurinn á að hýsa fjóra leiki í riðlakeppni HM í sumar en það eru eftirtaldir leikir: Íran-Nígería (16. júní), Hondúras-Ekvador (20. júní), Ástralía-Spánn (23. júní) og Alsír-Rússland (26. júní).
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Leik lokið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Opinberuðu sambandið með sigurkossi Formúla 1 Fleiri fréttir Leik lokið: Afturelding - Vestri 1-1 | Mikið undir hjá báðum liðum Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Í beinni: Fram - Stjarnan | Baráttan um fjórða sætið Katla kynnt til leiks í Flórens Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Sjá meira