Lífið

Rosalega fótósjoppaðar myndir af fegurðardísum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Myndir af keppendum í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Filippseyjar voru settar á Yahoo Philippines á dögunum en keppendurnir eru alls 26 talsins.

Eins og sést á meðfylgjandi myndum er búið að lagfæra myndirnar ansi mikið í forritinu Photoshop og eru keppendurnir nær óþekkjanlegir. Er búið að lýsa húð þeirra mjög mikið og gera stúlkurnar ómanneskjulegar.

Margir hafa skrifað athugasemdir við myndirnar og eru ekki par sáttir við þessar gífurlegu breytingar á myndunum.

„Ó Guð minn góður, það ætti að reka manninn sem lagfærði þessar myndir. Þessar myndir eru hræðilegar,“ skrifar einn.

„Þessar myndir eru svo pirrandi! Af hverju er ekki hægt að sýna raunverulega fegurð? Í staðinn er reynt að eyðileggja myndirnar með því að lagfæra þær,“ bætir annar við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.