Biðjast afsökunar á karlrembu í spurningaþætti Atli Ísleifsson skrifar 16. október 2014 09:55 Þáttastjórnandinn Grant Denyer sagði almenningi að hann ætti ekki að kenna þættinum um svörin. Mynd/Channel 10
Ástralska sjónvarpsstöðin Channel 10 hefur beðist afsökunar á einni spurningu í spurningaþættinum Family Feud þar sem keppendur voru beðnir um að geta hvaða svör hundrað manna hópur gaf þegar hann var beðinn um að nefna „kvenmannsstarf“. „Réttu“ svörin sneru meðal annars að matreiðslu, þrifum, hárgreiðslu, heimilisstörfum, afgreiðslu og uppvaski. „Réttu“ svörin fyrir karlastörf voru meðal annars byggingameistari, pípulagningamaður og bifvélavirki. Sjónvarpsstöðin sagði svörin „ekki endurspegja skoðun allra Ástrala“. Þátturinn gengur út á að tvær fjölskyldur keppa í því að geta hver séu vinsælustu svörin þegar ákveðin spurning hefur verið lögð fyrir hundrað manna hóp. Þáttur gærdagsins vakti mikla reiði á samfélagsmiðlum, þar sem áhorfendur sögðu þáttinn lykta af karlrembu, vera skammarlegur og ýta undir staðalímyndir kynjanna. Í þætti miðvikudagsins spurði þáttastjórnandinn Grant Denyer þátttakendur um að „nefna eitthvað sem fólk álítur vera kvenmannsstarf“. Fyrr í þættinum hafði hann spurt þátttakendur um að „nefna eitthvað sem fólk álítur vera karlmannsstarf“. Í tilkynningu frá sjónvarpsstöðinni segir að spurningarnar hafi verið vanhugsaðar og hefðu ekki átt að vera með í þættinum. Denyer svaraði hins vegar á Twitter: „Ekki kenna okkur um svörin, þetta eru svör ykkar Ástrala“.We tested some social values on FF: name something people THINK is a man/woman's job? Don't blame us 4 the answers, they're yours Australia!— Grant Denyer (@grantdenyer) October 16, 2014
Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira