Brasilía ekki aðili að samkomulagi um stöðvun skógareyðingar Atli Ísleifsson skrifar 24. september 2014 15:07 Brasilíski umhverfisráðherrann segir Brasilíu hafa sett sér sín eigin markmið, þar sem ætlunin er að draga úr eyðingu skógar um 3.900 ferkílómetra á hverju ári fram til ársins 2020. Vísir/AFP
Brasilísk stjórnvöld hafa neitað því að gerast aðilar að fjölþjóðlegu samkomulagi um stöðvun skógareyðingar fyrir árið 2030. Bandaríkin, Kanada og aðildarríki ESB voru meðal þeirra þrjátíu ríkja sem hafa heitið því að draga úr skógareyðingu um helming fyrir árið 2020 og vinna að endanlegu markmiði fyrir 2030. Stærstu órofnu regnskógar heims eru í Brasilíu, en stjórnvöld þar í landi segja að samkomulagið myndi brjóta í bága við lög landsins.Í frétt BBC segir að starfsmenn Sameinuðu þjóðanna vonist til að samkomulagið taki gildi á næsta ári. Isabella Teixeira, umhverfisráðherra Brasilíu, segir að ekki hafi verið haft samráð við brasilísk stjórnvöld þegar unnið var að gerð samkomulagsins. „Ég tel hins vegar ómögulegt að hugsa sér að mögulegt sé að vera með alþjóðlegt framtak sem varðar skóga án þess að Brasilía sé aðili. Það gengur ekki upp.“ Ráðherrann segir Brasilíu hafa sett sér sín eigin markmið, þar sem til standi að draga úr eyðingu skógar um 3.900 ferkílómetra á hverju ári fram til ársins 2020.
Mest lesið Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Oscar einn af fimmtíu sem fá íslenskan ríkisborgararétt Innlent Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Ástandið miklu verra en það sem áður var talið hættulegt Innlent Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt Innlent Fleiri fréttir Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Sjá meira