Tveggja ára fangelsi fyrir heimilisofbeldi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 3. desember 2014 12:00 Stjúpdóttirin hlaut fjölmarga yfirborðsáverka á höfði og andliti, þar á meðal bólgu undir hægra auga, tvær kúlur í hársverði og sár neðan við nef. Vísir/Getty
Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á hendur fyrrverandi eiginkonu sinni og stjúpdóttur. Árásin átti sér stað að morgni laugardagsins 28. september á heimili þeirra í Breiðholti. Einnig var honum gert að greiða konunum samanlagt eina og hálfa milljón króna í skaðabætur. Sjö hundruð þúsund annars vegar og átta hundruð þúsund hins vegar. Manninum var gefið að sök að hafa rifið í hár stjúpdóttur sinnar og kýlt hana í andlitið, hrint henni í gólfið og fyrir að hafa að minnsta kosti sparkað í höfuð hennar í tvígang þar sem hún lá á gólfi íbúðarinnar. Stjúpdóttirin hlaut fjölmarga yfirborðsáverka á höfði og andliti, þar á meðal bólgu undir hægra auga, tvær kúlur í hársverði og sár neðan við nef. Þá hlaut hún hreyfieymsli yfir andlitsbeinum og hryggjartindum. Þá veittist maðurinn að eiginkonu sinni, hrækti á hana, reif í hár hennar og sló hana. Þá á hann að hafa kýlt hana bæði í höfuð og maga eftir að hún féll á gólf íbúðarinnar. Þá reyndi maðurinn að bíta konuna í andlitið. Við aðalmeðferð málsins bar maðurinn því alltaf við að frásögn mæðgnanna væri uppspuni frá rótum. Stjúpdóttirin sagði að samskipti þeirra hefðu verið góð til að byrja með en breyst eftir því sem hún varð eldri. Á hennar yngri árum hafi það alltaf verið móður sinni að kenna þegar eitthvað hafi komið upp á. Að hann hafi í raun heilaþvegið hana. „Þegar ég varð eldri sá ég að hann var að gera það sama við yngri systkini mín.“
Tengdar fréttir Heimilisofbeldi í Breiðholti: Andlegu áverkarnir þeir verstu "Ég gat ekki farið frá börnunum,“ segir kona sem varð fyrir miklu ofbeldi af hálfu eiginmanns síns. 22. október 2014 13:10 „Mér fannst þetta eðlilegt allt mitt líf“ Tvítug kona lýsti meintu heimilisofbeldi stúpföðurs síns gegn henni og móðir hennar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 27. október 2014 13:35 Sérstaklega hættuleg líkamsárás: Sparkaði í höfuð stjúpdóttur sinnar í tvígang Íslenskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á hendur stjúpdóttur sinni og að ráðast á fyrrverandi eiginkonu sína. Árásin átti sér stað á heimili mæðgnanna að morgni laugardagsins 28. september árið 2013. 23. september 2014 10:00 Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fleiri fréttir Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Sjá meira
Heimilisofbeldi í Breiðholti: Andlegu áverkarnir þeir verstu "Ég gat ekki farið frá börnunum,“ segir kona sem varð fyrir miklu ofbeldi af hálfu eiginmanns síns. 22. október 2014 13:10
„Mér fannst þetta eðlilegt allt mitt líf“ Tvítug kona lýsti meintu heimilisofbeldi stúpföðurs síns gegn henni og móðir hennar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 27. október 2014 13:35
Sérstaklega hættuleg líkamsárás: Sparkaði í höfuð stjúpdóttur sinnar í tvígang Íslenskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á hendur stjúpdóttur sinni og að ráðast á fyrrverandi eiginkonu sína. Árásin átti sér stað á heimili mæðgnanna að morgni laugardagsins 28. september árið 2013. 23. september 2014 10:00