„Mér fannst þetta eðlilegt allt mitt líf“ Samúel Karl Ólason skrifar 27. október 2014 13:35 Vísir/Getty
Aðalmeðferð í máli karlmanns sem ákærður er fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á hendur fyrrverandi eiginkonu sinni og stjúpdóttur hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Stjúpdóttirin sem fædd er árið 1994 var í skýrslutöku í dag. Árásin átti sér stað að morgni laugardagsins 28. september 2013 á heimili þeirra í Breiðholti. Hjónin skildu að borði og sæng árið 2011 en að sögn konunnar neitaði maðurinn að flytja út úr íbúðinni. Hún hafi því gripið til sinna ráða og flutt allar hans föggur sjálf úr íbúðinni og sett upp dyraslá. Við það hafi hann reiðst.Segir hann hafa sparkað í höfuð sitt Stjúpdóttir mannsins sagði fyrir dómi í dag að hún hefði vaknað snemma þann morgun og hefði legið í sófanum þegar móðir hennar kom fram og sagði að pabbi hennar væri að koma. Þær földu sig í íbúðinni og opnuðu ekki fyrir honum þegar hann byrjaði að berja á hurðina. Hún sagði að hann hefði þá farið út í bílskúr og brotið niður hurðina með sleggju sem hann náði í. Að því loknu hafi hann ruðst inn í herbergi, kýlt sig og dregið fram á hárinu. Þar hafi hann sparkað í höfuð hennar. Fyrst tiltölulega laust en svo þegar móðir hennar sagði honum að hætta hafi hann sparkað fastar. „Hann kallaði mig hóru, mellu og druslu og hann ásakaði mömmu um að halda fram hjá sér,“ sagði stjúpdóttirin og bætti við að hann hefði margsinnis sakað móður sína um framhjáhald. Stjúpdóttirin sagði atvikið hafa reynst sér erfitt, andlega séð, og síðan hafi hún verið á þunglyndislyfjum.Var heilaþvegin Hún sagði samband hennar við stjúpföður sinn hafa verið mjög gott lengi vel. Þegar verjandi mannsins spurði hana nánar út í það, sagði hún að samband þeirra hafi breyst þegar hún varð eldri. Á hennar yngri árum hafi það alltaf verið móður sinni að kenna þegar eitthvað hafi komið upp á. Að hann hafi í raun heilaþvegið hana. „Þegar ég varð eldri sá ég að hann var að gera það sama við yngri systkini mín.“ Verjandinn sagði atvikalýsingu hennar vera óskýra og spurði hana nánar út ýmis atriði sem endaði með að konan varð honum reið. Dómarinn batt þó enda á margar spurningar verjandans eftir að hafa í nokkur skipti gert út á að búið væri að svara spurningum sem spurðar voru. Þá spurði dómarinn konuna út í andlega líðan sína eftir atvikið. Hún sagði þetta hafa reynst sér erfitt. Hún hafi ekki farið út í marga daga og þá hvorki í vinnu né skóla. Þá hafi hún farið að gráta þegar hún fór í skólann eftir að kennari hafi hækkað róminn við sig.„Skíthrædd“ við hann „Fyrir mér var þetta eðlilegt,“ sagði hún. Hún hefur ekki leitað sér hjálpar eftir atvikið, en þegar hún var yngri fór hún til sálfræðings. Þá sagði hún stjúpföður sinn hafa kallað sig aumingja vegna þessa og því hafi hún ekki farið aftur til sálfræðingsins. „Mér fannst þetta eðlilegt allt mitt líf.“ Verjandi mannsins sagði manninn og móðurina hafa verið í samskiptum eftir þetta kvöld. Stjúpdóttirin sagði samskipti móður sinnar og mannsins alltaf hafa verið upp og niður, en að móðir sín væri „skíthrædd“ við hann. Þá sagði hún að hann hefði sent móður sinni sms skilaboð. Þar hafi hann sagt að færi hann í fangelsi væri það fyrsta sem hann gerði eftir að hann losnaði að hefna sín á þeim mæðgum. Maðurinn þvertók fyrir að hafa ráðist á þær mæðgur í skýrslutöku sinni í síðustu viku og segir allt sem fram hafi komið í máli þeirra helberan uppspuna. Konan sagði aftur á móti að samband þeirra síðastliðin 12-13 ár hafi einkennst af ofbeldi en þó hófu sambúð árið 1997. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, aðstoðarsaksóknari, sækir málið fyrir hönd Ríkissaksóknara og Snorri Sturluson er verjandi mannsins. Aðalmeðferð málsins lýkur með málflutningi þeirra á miðvikudaginn.
Tengdar fréttir Heimilisofbeldi í Breiðholti: Andlegu áverkarnir þeir verstu "Ég gat ekki farið frá börnunum,“ segir kona sem varð fyrir miklu ofbeldi af hálfu eiginmanns síns. 22. október 2014 13:10 Sérstaklega hættuleg líkamsárás: Sparkaði í höfuð stjúpdóttur sinnar í tvígang Íslenskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á hendur stjúpdóttur sinni og að ráðast á fyrrverandi eiginkonu sína. Árásin átti sér stað á heimili mæðgnanna að morgni laugardagsins 28. september árið 2013. 23. september 2014 10:00 Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Sjá meira
Heimilisofbeldi í Breiðholti: Andlegu áverkarnir þeir verstu "Ég gat ekki farið frá börnunum,“ segir kona sem varð fyrir miklu ofbeldi af hálfu eiginmanns síns. 22. október 2014 13:10
Sérstaklega hættuleg líkamsárás: Sparkaði í höfuð stjúpdóttur sinnar í tvígang Íslenskur karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á hendur stjúpdóttur sinni og að ráðast á fyrrverandi eiginkonu sína. Árásin átti sér stað á heimili mæðgnanna að morgni laugardagsins 28. september árið 2013. 23. september 2014 10:00