Maven komið á braut um Mars Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 22. september 2014 13:15 Sævar Helgi Bragason og Maven.
Maven, könnunarfar bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA er komið á sporbaug um plánetuna Mars eftir tíu mánaða ferðalag. Könnunarfarið hefur verið á fleygiferð í átt að plánetunni síðustu mánuði og þegar það var komið í hæfilega fjarlægð var hægt á ferðinni þannig að þyngdarafl Mars næði tökum á því. Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, segir að tilgangur verkefnisins sé að kanna lofthjúp plánetunnar, en það hefur ekki verið gert áður. „Þannig er að við vitum að lofthjúpur Mars var einusinni miklu miklu þykkari en hann er í dag. Við sjáum það út frá ummerkjum um rennandi vatn á yfirborðinu en hann hefur gengið í gegnum einhverjar rosalegar loftslagsbreytingar, það er að segja hann hefur þynnst mikið en við vitum ekki ástæðuna. Það er hlutverk geimfarsins að lesa aðeins út úr því. Lesa sögu lofthjúpsins hvernig hann hefur breyst og hvaða ferli var þar að baki.“ Sævar segir líklegt að sólvindar hafi feykt lofthjúpnum á Mars í burtu. „Markmiðið er því meðal annars að skera úr um það hve stórt hlutverk sólvindar hafa leikið í þessu. Og hvaða áhrif það hefur haft á hugsanlegan lífvænleika reikistjörnunnar.“ Sævar segir ennfremur að næsta árið hið minnsta muni geimfarið afla gagna á sporbaug sínum. Síðan taki við úrvinnsla gagna og sú vinna mun að hans sögn taka mörg ár.
Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira