Jens Stoltenberg tekur við keflinu hjá NATO Atli Ísleifsson skrifar 1. október 2014 14:02 Jens Stoltenberg gegndi embætti forsætisráðherra Noregs á árunum 2000 til 2001 og 2005 til 2013. Vísir/AFP
Jens Stoltenberg, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, tekur í dag við embætti framkvæmdastjóra NATO af Anders Fogh Rasmussen. Á fréttamannafundi af því tilefni nú skömmu eftir hádegi sagði Stoltenberg það vera mikinn heiður að taka við embættinu sem hann lýsti sem krefjandi starf á krefjandi tímum. Stoltenberg segist þó hafa fundið fyrir miklum stuðningi frá öllum bandalagsríkjum. „Við verðum að vera með öflugt NATO og öflugt samstarf milli Evrópu og Norður-Ameríku.“Í frétt Verdens Gang kemur fram að Stoltenberg segi öll bandalagsríkin verða að axla ábyrgð og að bandalagið verði að geta tekið ákvarðanir á hættutímum þar sem aðstæður bretyast fljótt. Stoltenberg sagðist vilja heimsækja öll bandalagsríkin og hefur skipulegt ferðir til Póllands og Tyrklands á næstu dögum. Hann sagði ástandið í Úkraínu vera mikla áskorun fyrir öryggi bandalagssvæðisins. „Við getum ekki gert málamiðlanir þegar kemur að öryggi Evrópu og Norður-Ameríku. Við verðum að sjá breytingar í aðgerðum Rússlands,“ og bætir við að hann sjái enga mótsögn í því að hafa sterkt NATO og að eiga gott samstarf við Rússland. Stoltenberg sagði jafnframt bandalagið ætla að halda áfram stuðningi sínum við Afganistan.Í frétt danska ríkisútvarpsins kemur fram að Anders Fogh Rasmussen hafi stofnað ráðgjafafyrirtæki, Rasmussen Global, sem hann komi til með að sinna nú þegar hann hafi látið af embætti framkvæmdastjóra NATO.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Innlent Fleiri fréttir Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sjá meira