Tveir kennarar grunaðir um kynferðisbrot gegn nemanda Aðalsteinn Kjartansson skrifar 1. október 2014 22:02 Nemandinn var sextán ára gamall þegar atvikið átti sér stað.
Tveir kennarar við bandarískan gagnfræðiskóla hafa verið handteknir vegna gruns um að þeir hafi brotið kynferðislega gegn karlkyns nemanda við skólann. Kennararnir hafa báðir verið leystir tímabundið frá störfum. Þetta staðfestir lögreglan í Louisiana við bandaríska fjölmiðla. Huffington Post greinir frá því að kennararnir séu þær Shelley Dufresne, 32 ára, og Rachel Respess, 24 ára. Dufresne hefur starfað við skólann í tíu ár en Respess í tvö. Grunur leikur á að kennararnir tveir hafi hitt nemandann á heimili annarrar þeirra þar sem þau hafi haft samfarir. Nemandinn var sextán ára gamall þegar atvikið átti sér stað. Dufresne, þriggja barna móðir, var handtekin í gær en leyst úr haldi gegn 200 þúsund dala tryggingu í gærkvöldi. Hún má ekki yfirgefa heimili sitt nema til að sækja sér sálfræðimeðferð, fara til læknis og í kirkju. Respess gaf sig fram við lögreglu í dag. Rannsókn málsins hófst á föstudag eftir að aðrir starfsmenn skólans heyrðu af því að nemandinn væri að „monta sig af því við aðra nemendur að hann ætti í kynferðislegu sambandi við kennara“, að því er fram kemur í skýrslu lögreglu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem mál af þessum toga kemur upp í skólanum. Árið 2008 var karlkyns kennari sakaður um að hafa brotið gegn kvenkyns nemanda.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira