Barack Obama: "Við getum ekki bara lokað á Vestur-Afríku“ Aðalsteinn Kjartansson skrifar 18. október 2014 21:15 Obama ávarpaði Bandaríkjamenn í dag þar sem hann talaði um ebólu. Vísir / AP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hvetur landa sína til að láta ekki espa sig upp í hræðslu vegna ebólu. Þrjú tilfelli hafa greinst í Bandaríkjunum síðustu vikur en tugir manna eru undir eftirliti yfirvalda vegna veirunnar. Þetta sagði hann í ávarpi í dag. Í máli forsetans kom skýrt fram að hann ætlaði ekki að láta undan þrýstingi nokkurra þingmanna sem kallað hafa eftir ferðatakmörkunum. „Við getum ekki bara lokað á Vestur-Afríku,“ sagði Obama í vikulegu ávarpi. „Að reyna að loka af hluta af heiminum – ef það er hægt yfir höfuð – gæti í raun gert stöðuna verri,“ sagði hann. Talið er að um 4.500 manns séu látnir í ebólufaraldrinum sem nú geisar en langflestir hinna látnu veiktust í Líberíu, Síerra Leóne og Gíneu. Einn hefur látist í Bandaríkjunum vegna ebólusmits en það var Líberíumaður sem var tiltölulega nýkominn til Bandaríkjanna frá heimalandi sínu. Obama hefur verið gagnrýndur vestanhafs fyrir það hvernig stjórnvöld hafa tekið á ebólumálinu. Hann hefur haldið nokkra fundi um faraldurinn og á föstudag skipaði hann lögfræðinginn Ron Klain til að hafa yfirumsjón með tilraunum Bandaríkjamanna til að hafa stjórn á útbreiðslu veirunnar. Repúblikanar hafa meðal annars gagnrýnt Obama fyrir að velja ekki lækni í það hlutverk. Afar litlar líkur eru á því að veiran breiðist frekar út í Bandaríkjunum sem og annarsstaðar í vestrænum heimi. Veiran smitast aðeins með beinni snertingu við líkamsvessa smitaðs einstaklings sem farinn er að sýna einkenni. Aðeins er fylgst heilbrigðisstarfsmenn sem önnuðust Líberíumanninn sem lést og þeim einstaklingum sem átt hafa í samskiptum við þá.
Mest lesið Gátu ekki gefið skýr svör um mögulegt ástarsamband Innlent „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Innlent Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Innlent Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Erlent Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Erlent Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Erlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent „Það kom babb í bátinn í Hafnarfjarðarhöfn“ Innlent Tafir við gönguljós á Hringbraut ekki vegna bilunar Innlent Ingólfur leysir Baldur af Innlent Fleiri fréttir Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Eitt alræmdasta sakamál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi Nemandi alvarlega særður í stunguárás í skóla í Osló Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Hafna viðræðum til hægri Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Trump segir að árásum á orkuinnviði verði hætt Vilja verða jafningjar Englendinga Stjórnarmyndunarmaraþon framundan í Svíþjóð Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Gefa kola- og gasorkuverum lausan tauminn Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Leita 129 manns eftir að ferju hvolfdi við Indónesíu Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Johnson rétt slapp við árás Rússa Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Sjá meira