Kristinn: Held að þetta sé ekki of stórt skref Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. desember 2014 06:00 Kristinn gerði fjögurra ára samning við bandaríska MLS-liðið Columbus Crew í gær. vísir/pjetur
Blikinn Kristinn Steindórsson varð í gær annar íslenski leikmaðurinn sem semur við lið í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu frá endurstofnun hennar árið 1996. Kristinn gerði fjögurra ára samning við Columbus Crew sem er frá samnefndri borg í Ohio-ríki, en Kristinn hefur spilað síðustu þrjú ár með Halmstad í Svíþjóð. Þjálfari liðsins er Bandaríkjamaðurinn Gregg Berhalter sem þjálfaði Hammarby í Svíþjóð frá 2012-2013. „Ég spilaði á móti Hammarby með Halmstad þegar við vorum í 1. deildinni í Svíþjóð. Hann þekkir mig síðan þá og hefur verið að fylgjast með mér,“ segir Kristinn í viðtali við Fréttablaðið. „Nú þegar ég var orðinn samningslaus hafði hann samband við mína umboðsmenn og þannig fór boltinn að rúlla,“ segir hann.Kristinn er spenntur fyrir Bandaríkjunum.vísir/pjeturLítur vel út Aðeins Guðlaugur Victor Pálsson hefur verið á mála hjá MLS-liði, en hann spilaði með New York Red Bulls. Þekkingin á deildinni er því eðlilega ekki mikil á meðal Íslendinga. „Mér fannst þetta spennandi þegar þetta kom upp þó ég vissi ekki mikið um deildina. Ég var aðeins efins fyrst. En um leið og ég var búinn að tala við þjálfarann og kynna mér félagið þá var þetta aldrei spurning í mínum huga,“ segir Kristinn, sem á þó eftir að heimsækja borgina. „Þeir voru bara að klára tímabilið núna og fóru svo í frí. Ég hef rætt við þjálfarann og fengið upplýsingar um félagið. Svo hef ég horft á nokkra leiki og séð tilþrif á YouTube. Þetta lítur mjög vel út.“Á eftir að líða vel Columbus er ríflega 800 þúsund manna borg og deila tvö atvinnumannalið áhuga íþróttaunnenda. Það er NHL-liðið Columbus Blue Jackets og The Crew eins og fótboltaliðið er kallað. Fótboltaáhugi er gríðarlega mikill í borginni og leikir Crew vel sóttir. Liðið var það fyrsta sem fékk völl sérhannaðan fyrir knattspyrnuleiki og þar spilar bandaríska liðið oft. „Það náttúrlega hjálpar að þarna er ekki NFL-lið sem tekur áhuga frá fótboltaliðinu sem gerir þetta mjög spennandi. Það er allt á réttri leið þarna. Ég hef verið að kynna mér hugmyndafræði liðsins og hvernig það vill gera hlutina. Það sem ég hef séð og heyrt líkar mér. Ég held mér eigi eftir að líða vel þarna,“ segir Kristinn, en hvað varðar fótboltann þá hentar hann þessum skjóta og marksækna kantmanni mjög vel. „Ég veit að liðið vill vera mikið með boltann sem hentar mér mjög vel. Það var með næstflestar sendingar í deildinni á síðustu leiktíð. Liðið spilar leikkerfið 4-2-3-1 og þessir þrír fyrir aftan framherjann eiga að koma „inn á völlinn“ og skapa hluti þaðan. Það er gott fyrir mig, en í Svíþjóð var ég meira hefðbundinn kantmaður.“Kristinn fagnar marki með Halmstad í Svíþjóð.mynd/hbk.seDreymir um landsliðið Kristinn hefur verið í lykilhlutverki hjá Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni undanfarin tvö ár og skoraði átta mörk á síðustu leiktíð. Hann hefur ekki enn fengið tækifæri í landsliðshópi Lars og Heimis, en vonast til að þessi félagaskipti hjálpi til við það. „Ákvörðunin var ekki tekin með mið af landsliðinu, en ég held klárlega að þetta skref muni hjálpa mér. Ég verð í betra umhverfi og betri deild tel ég tvímælalaust. En svo er bara undir mér komið að standa mig. Þó ákvörðunin sé ekki tekin í von um að fá landsliðskall þá held ég að þetta eigi eftir að auka möguleikana á því. Það er náttúrlega það sem maður vonast eftir. Það hefur verið draumur lengi að fá fyrsta leikinn með landsliðinu,“ segir Kristinn, sem er ánægður með þau skref sem hann hefur tekið á ferlinum. Hann fór úr Pepsi-deildinni í sænsku 1. deildina og upp með sínu liði í sænsku úrvalsdeildina. Og nú fær hann tækifæri í stórri deild. „Ég er mjög sáttur við þetta og held að þetta sé ekki of stórt skref. Ég hef fulla trú á því að ég geti haft áhrif þarna strax og hjálpað liðinu.“Kristinn kveðjur nú Svíþjóð.mynd/hbk.seKall frá Beckham? Í fyrradag fór fram hálfgert nýliðaval í MLS-deildinni þar sem nýju liðin tvö, New York City FC og Orlando City SC, fengu að velja sér tíu leikmenn hvort frá hinum liðunum til að stækka leikmannahópa sína. Eftir nokkur ár kemur nýtt lið í Miami inn í deildina og fær að gera það sama, en eigandi þess er David Beckham. „Hver veit nema maður endi þar. Það væri ekki leiðinlegt að sitja inni í klefa og svo kæmi Beckham að segja manni að maður hefði staðið sig vel,“ segir Kristinn og hlær. „En fyrsta skrefið er auðvitað bara að komast í liðið hjá Crew og standa mig þar. Þjálfarinn hefur sagst hafa fulla trú á mér. Ég ætla að reyna að gera mitt besta þarna og allt annað er aukatriði,“ segir Kristinn.
Fótbolti Tengdar fréttir Kristinn genginn í raðir Columbus Crew Kristinn Steindórsson spilar næstu árin í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. 11. desember 2014 16:28 Kristinn: Þetta er spennandi tækifæri Fleiri lið en Columbus Crew höfðu áhuga á Kristni en honum fannst Bandaríkin mest spennandi. 11. desember 2014 16:46 Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira
Kristinn genginn í raðir Columbus Crew Kristinn Steindórsson spilar næstu árin í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. 11. desember 2014 16:28
Kristinn: Þetta er spennandi tækifæri Fleiri lið en Columbus Crew höfðu áhuga á Kristni en honum fannst Bandaríkin mest spennandi. 11. desember 2014 16:46