Engir vetrarólympíuleikar í Ósló árið 2022 Atli Ísleifsson skrifar 2. október 2014 11:05 Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs. Vísir/AP
Stian Berger Røsland, borgarstjóri Óslóar, hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun þingflokks stjórnarflokksins Høyre sem ákvað í gær að samþykkja ekki ríkisábyrgð vegna Ólympíuleika í Ósló árið 2022. Borgin sóttist á síðasta ári eftir því að halda leikana, en umsóknin hefur nú verið dregin til baka. Røsland hefur þó heitið því að reisa nýja íþróttaleikvanga og bæta aðstæður til íþróttaiðkunar í borginni, þrátt fyrir ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Verður það meðal annars gert í og í kringum borgina, í Kjelsrud, Økern, Ulven og Stubberud.Í frétt NRK kemur fram að Røsland segi að ef Ólympíuleikarnir hefðu farið fram í Ósló hefðu framkvæmdirnar klárast fyrir 2022, en nú sé ljóst að þær muni eitthvað dragast. Erna Solberg forsætisráðherra sagði þingflokk Høyre hafa rætt málið vel og vandlega, en að lokum hafi verið ákveðið að samþykkja ekki ríkisábyrgð. Kostnaðurinn hafi verið of mikill og áhugi almennings á verkefninu ekki nægur. Óslóarborg hafði þegar varið um tveimur milljörðum íslenskra króna í umsóknina og um 1,5 milljarði til viðbótar vegna framkvæmda og áætlanagerðar vegna ýmissa framkvæmda í borginni í tengslum við mögulega Ólympíuleika. Alþjóðaólympíunefndin mun ákveða í júlí á næsta ári hvar vetrarólympíuleikarnir verða haldnir árið 2022. Kínverska höfuðborgin Beijing og kasakska borgin Almaty koma nú einar til greina eftir ákvörðun norskra yfirvalda. Áður höfðu Stokkhólmur, pólska borgin Krakow og úkraíska borgin Lviv dregið umsóknir sínar til baka.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Fleiri fréttir Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Sjá meira