Ajax og Dinamo Zagreb deila um efnilegan Serba Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 21. júní 2014 20:30 Muric í leik með U-17 ára landsliði Króatíu vísir/afp
Hollenska knattspyrnustórveldið Ajax tilkynnti í síðustu viku að liðið hefði samið við Robert Muric, 18 ára gamlan króatískan kantmann frá Dinamo Zagreb. Ajax segir Muric hafa gert fjögurra ára samning við liðið en forráðamenn Dinamo eru ekki á eitt sáttir og vilja meina að leikmaðurinn sé samningsbundinn króatíska félaginu. „Þeir eru að reyna að láta Robert yfirgefa Dinamo á frjálsri sölu og eru að ógna ferli hans,“ sagði Zdravko Mamic forseti Dinamo Zagreb. „Félagið er þekkt fyrir að hjálpa leikmönnum að komast til góðra liða og Robert gæti gert það því hann er mjög hæfileikaríkur,“ sagði Mamic og vísaði þar til að Luka Modric, Alen Halilovic, Dejan Lovren og Vedran Corluka ólu allir manninn hjá Dinamo áður en þeir voru seldir til öflugra félaga í Evrópu. „Samningur hans rennur út 15. júní en í honum segir að hann sé skuldbundinn að skrifa undir nýjan samning sem gildir til ársins 2019,“ sagði Mamic en sagði svo síðar að samningur Muric við Dynamo renni út næsta sumar. „Það er ótrúlegt hvað þeir eru að gera við strákinn. Mamic hefur boðað okkur á fund en ég vil aldrei fara aftur inn á skrifstofu hans. Ekki eftir það sem á undan er gengið. Við getum bara beðið og verið þolinmóðir,“ sagði Branko Muric faðir Robert. Forráðamenn Dinamo vilja meina að Robert hafi samið við Ajax þegar hann er samningsbundinn félaginu og æfði hann því ekki með liðinu síðustu mánuði tímabilsins og hefur ekki keppt í næstum heilt ár. Samningsmál leikmannsins unga verða ekki leyst nema fyrir dómsstólum sem munu taka mál hans fyrir á næstunni.
Fótbolti Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Enski boltinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Fótbolti Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Körfubolti „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Íslenski boltinn Fundu loks arftaka eftir að Arnór samdi við HSÍ Sport Hlauparar hópast í nýja íþróttafélagið Hraða Sport Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Enski boltinn „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Fleiri fréttir Fiorentina fjarlægist fallsætin Strákarnir hans Sigga Ragga með fjögurra stiga forskot á toppnum Konaté segist vera nálægt því að framlengja við Liverpool Elías með stórleik í sigri í toppslag Rosenior finnur fyrir hundrað prósent stuðningi Marco Rose tekur við Bournemouth eftir tímabilið Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Goðsögn tekur við og þjálfar son sinn Graði Norðmaðurinn steig fram og leiðrétti þjálfarann Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Sjáðu tímamótamark íslenska táningsins eftir „erfiðan“ tíma Slapp við rautt: „Hann missir hausinn algjörlega“ Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Sjáðu mörkin: Haaland setti allt í hnút og hetjudáð Van Dijk Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM „Hann var grátandi í hálfleik“ Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG „Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ „Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ „Við fengum stór færi til að vinna“ Viktor Bjarki skoraði þegar FCK landaði sigri eftir að hann kom inn á Luis Díaz lagði upp tvö þegar Bæjarar tryggðu sér þýska titilinn Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Viðar með stoðsendingu í stórsigri Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Sjá meira