Norðmenn hlaða í stærstu flugeldasýningu heims Atli Ísleifsson skrifar 25. september 2014 14:45 Ætlunin er meðal annars að mynda rísastóran norskan fána á himninum til að minnast 200 ára afmæli norsku stjórnarskrárinnar. Vísir/AFP
Eftir sex mánaða undirbúning hefur norski verslunarmaðurinn Frank Abildsnes nú útvegað sér öll tilskilin leyfi til að standa fyrir stærstu flugeldasýningu heims í Sogni á suðurströnd Noregs. Sýningin verður laugardaginn 29. nóvember næstkomandi og vonast Abildsnes til að allt að 10 þúsund manns komi til að verða vitni af sjónarspilinu. Núverandi heimsmet var sett síðasta gamlárskvöld í Dubai en nú lítur úr fyrir að heimsmetið muni ekki standa mikið lengur. „Þeir kveiktu í 480 þúsund flugeldum á sex mínútum í Dubai. Við ætlum að kveikja í rúmlega 530 þúsund flugeldum á jafnlöngum tíma,“ segir Abildsnes í samtali við Kristiansand Avis. Abildsnes segir að heimsmetstilraunin muni krefjast mikillar tækni og vonast hann til að fulltrúar frá Heimsmetabók Guinness láti sjá sig. „Þetta verða sem sagt 90 þúsund skot á mínútu, eða 1.500 á sekúndu.“ Til stendur að nota 3.300 kíló af sprengiefnum og er ætlunin að mynda risastóran norskan fána á himninum til að hylla 200 ára afmæli norsku stjórnarskrárinnar, sem tók gildi 17. maí 1814. Abildsnes viðurkennir að þetta sé mjög kostnaðarsamt verkefni en vonast til að styrktaraðilar aðstoði við að halda þessu réttu megin við núllið. Segir hann að mögulegur hagnaður muni renna óskertur til Rauða krossins. Dagskráin fyrir 29. nóvember er enn ekki komin endanlega á hreint, en bæjarbúar munu kveikja á jólatrénu um miðjan dag og svo hefst flugeldasýningin á slaginu 18. Á myndbandinu að neðan má sjá núverandi heimsmet sem sett var í Dubai um síðustu áramót.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Sjá meira