Hazard finnur ekki fyrir aukinni pressu Kristinn Páll Teitsson skrifar 1. júlí 2014 16:00 Eden Hazard. Vísir/Getty
Eden Hazard veit að hann hefur ekki verið upp á sitt besta hingað til í keppninni þrátt fyrir að Belgar hafi unnið alla leiki sína til þessa. Telur hann að hann geti gert helmingi betur í útsláttarkeppninni sem hefst í dag þegar Belgar mæta Bandaríkjunum. „Ég finn ekki fyrir aukinni pressu þrátt fyrir að ég viti að það eru margir að fylgjast með mér en ég nálgast alla leiki eins. Ég gæti þess bara að gera mitt allra besta í öllum þeim leikjum sem ég tek þátt í. Ég veit ekki hvað fólki finnst um frammistöðu mína hingað til en ég verð bara að gefa mitt besta í leikina sem eftir eru. Ég hef aðeins verið á hálfum hraða hingað til,“ Hazard á von á erfiðum leik á eftir og gerir hann ráð fyrir að bandaríska liðið muni reyna að taka harkalega á honum. Hann ætlaði hinsvegar ekki að láta neitt slíkt hafa áhrif á sig. „Þeir eru með líkamlega sterkt lið en ef þeir eru alltaf að brjóta á mér þýðir það að ég sé að eiga góðan dag. Ég vonast til þess að þeir brjóti sem oftast á mér þar sem þá fáum við aukaspyrnur og fleiri tækifæri til þess að skora mörk,“ sagði Hazard sem hefur líkt og margir aðrir hrifist af spilamennsku James Rodríguez hingað til á mótinu. „Ég hef fylgst með James, Messi og Neymar og reyni að fá innblástur af því að horfa á þá spila. Velgengni James sem hefur verið besti leikmaður mótsins kemur mér ekki á óvart, við mættum kólumbíska landsliðinu og ég hef séð hann í frönsku deildinni þar sem hann sýndi hæfileikana sína. Öll tölfræði gefur til kynna að hann hafi verið besti leikmaður mótsins hingað til,“ sagði Hazard.
HM 2014 í Brasilíu Tengdar fréttir Witsel: HM misheppnað ef við töpum gegn Bandaríkjunum Miðjumaður Belga segir liðið eiga að komast í átta liða úrslitin. 1. júlí 2014 14:30 Klinsmann: Erfitt að segja hvað Altidore getur spilað mikið Bandaríski framherjinn er klár í slaginn gegn Belgíu í kvöld. 1. júlí 2014 11:30 Sniðgangið belgískar vöfflur Bandaríska skyndibitakeðjan Waffle House skorar á alla landsmenn að sniðganga belgískar vöfflur í dag í tilefni leiks Bandaríkjanna og Belgíu. 1. júlí 2014 13:00 Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn „Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Sport Biður Liverpool að slaka á reglunum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Fótbolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Mæta „reyndari og erfiðari“ andstæðingum í búrinu í Framheimilinu Sport „Hápunktur ferilsins“ á opnunarhátíð Ólympíuleikanna Sport Fleiri fréttir Man. Utd - Tottenham | Rauðu djöflarnir á miklu flugi Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Biður Liverpool að slaka á reglunum Fara fögrum orðum um Íslendinginn unga Stóð með sjálfri sér: „Fann að ég myndi ekki ná að blómstra í þessu umhverfi“ Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Sjá meira
Witsel: HM misheppnað ef við töpum gegn Bandaríkjunum Miðjumaður Belga segir liðið eiga að komast í átta liða úrslitin. 1. júlí 2014 14:30
Klinsmann: Erfitt að segja hvað Altidore getur spilað mikið Bandaríski framherjinn er klár í slaginn gegn Belgíu í kvöld. 1. júlí 2014 11:30
Sniðgangið belgískar vöfflur Bandaríska skyndibitakeðjan Waffle House skorar á alla landsmenn að sniðganga belgískar vöfflur í dag í tilefni leiks Bandaríkjanna og Belgíu. 1. júlí 2014 13:00