Di María skaut Argentínu í 16-liða úrslitin 1. júlí 2014 14:37 Vísir/Getty
Angel Di María skoraði sigurmark Argentínumanna á lokamínútum framlengingarinnar í 1-0 sigri á Sviss í 16-liða úrslitum Heimsmeistarakeppninnar. Di María hafði verið slakur fram að markinu en hafði stáltaugar og kláraði leikinn þegar aðeins tvær mínútur voru eftir af uppbótartímanum. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en besta tækifæri hálfleiksins fengu Svisslendingar. Löng sending kom inn fyrir vörn Argentínumanna þar sem Josip Drmic var einn á auðum sjó en reyndi að vippa boltanum yfir Sergio Romero í argentínska markinu sem var vel staðsettur og greip boltann. Staðan var því markalaus í hálfleik. Í seinni hálfleik hertu Argentínumenn tökin á leiknum og fór leikurinn að mestu leyti fram á vallarhelmingi Sviss. Þrátt fyrir nokkur ágæt færi tókst Argentínumönnum ekki að koma boltanum framhjá Diego Benaglio í marki Sviss og þurfti því að grípa til framlengingar. Það virtist allt stefna í vítaspyrnukeppni þegar Di Maria skoraði sigurmark Argentínu í lok uppbótartímans. Lionel Messi fékk þá boltann á miðjum vallarhelmingi Svisslendinga, keyrði að vítateignum og sendi á Di María sem lagði boltann í hornið.Blerim Dzemaili fékk sannkallað dauðafæri á síðustu mínútum leiksins þegar hann fékk skallafæri af meters færi en skalli hans hafnaði í stönginni. Frákastið skoppaði af sköflungi Dzemaili og rétt framhjá stönginni. Svisslendingar reyndu hvað sem þeir gátu að ná jöfnunarmarkinu á lokamínútum leiksins en tókst ekki að koma boltanum í netið. Það voru því Argentínumenn tryggðu sæti sitt í 16-liða úrslitum en þeir fá að vita mótherja sinn seinna í kvöld eftir að leik Belgíu og Bandaríkjanna lýkur en hann hefst klukkan 20.00.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Íslenski boltinn Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fleiri fréttir „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ Sjá meira