Forseti Úkraínu heitir hefndum 30. maí 2014 13:03
Petro Pórósjenkó, nýkjörinn forseti Úkraínu, heitir því að refsa grimmilega þeim sem skutu niður úkraínska herþyrlu í gær með þeim afleiðingum að tólf féllu. Á meðal þeirra sem féllu í árásinni var einn æðsti hershöfðingi úkraínska hersins. Þyrlan var skotin niður nálægt borginni Slóvíansk í austurhluta landsins þar sem hörð átök hafa verið á milli stjórnarhermanna og aðskilnaðarsinna. Forsetinn kallar aðskilnaðarsinnana glæpamenn sem verði að uppræta sem allra fyrst en þeir hafa fjölmargar stjórnarbyggingar í austurhlutanum enn á sínu valdi og eru vel vopnaðir en þyrlan mun hafa verið skotin niður með háþróaðri loftvarnaeldflaug. Átökin hafa magnast mikið síðustu daga og á mánudag féllu tugir aðskilnaðarsinna í bardaga við flugvöllinn í Dónetsk. Rússar hafa ítrekað þá kröfu sína að stjórnin í Kænugarði láti þegar af öllum hernaðaraðgerðum í austurhéruðunum og hefji þess í stað friðarviðræður. Úkraínumenn saka Rússa hinsvegar um að styðja uppreisnarmennina og leggja þeim til vopn en Rússnesk stjórnvöld neita því staðfastlega. Leiðtogi aðskilnaðarsinna í Dónetsk, Alexander Borodai sagði í viðtali við rússneska sjónvarpsstöð að þeir séu tilbúnir í friðarviðræður, að því gefnu að úkraínustjórn láti af hernaðaraðgerðum sínum.
Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Fréttir John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Innlent Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Innlent Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Innlent Fleiri fréttir John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Sjá meira