Straumur flóttamanna til Evrópu eykst 30. maí 2014 13:07 Vísir/AFP
Mikil aukning hefur verið í komu flóttamanna til landa Evrópusambandsins frá áramótum. Flestir eru að flýja borgarastyrjöldina í Sýrlandi. Frá áramótum og fram í apríl hafa um sextíu þúsund manns freistað þess að komast með ólöglegum hætti til evrópu. Þetta kemur fram í tölum sem Frontex, landamærastofnun Evrópu heldur utan um en BBC greinir frá málinu. Talið er að þriðjungur flóttafólksins komi frá Sýrlandi þar sem harðvítug borgarastyrjöld hefur hrakið um þrjár milljónir manna frá heimilum sínum. Flestir reyna að komast frá Norður-Afríku og yfir til Ítalíu en á tímabilinu hafa um 42 þúsund manns reynt að ná til Evrópustranda. Flestir reyna að sigla frá Líbíu og hafa fjölmargir beðið bana í þeim tilraunum. Ítalía er aðal áfangastaður þessa fólks og frá áramótum hafa 39 þúsund manns komið þangað. Flóttamannastraumurinn á þessu ári er meiri en á sama tímabili árið 2011 þegar arabíska vorið stóð sem hæst og flóttamönnum fjölgaði mikið. Á því ári nam heildarfjöldinn 140 þúsundum en ef áfram fer sem horfir á þessu ári mun sambærileg tala verða töluvert hærri en það. Nú er sumarið að ganga í garð og sagan sýnir að flóttamönnum fjölgar á því tímabili.
Mest lesið Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Erlent Fleiri fréttir R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Sjá meira