Hafa grætt leg í níu konur Guðsteinn Bjarnason skrifar 13. janúar 2014 09:45 Læknar við sjúkrahúsið í Gautaborg höfðu lengi unnið að undirbúningi aðgerðanna. Mynd/AP „
Þetta er alveg ný tegund af skurðaðgerðum,” segir Mats Brännström, læknir við sjúkrahúsið í Gautaborg. „Við höfum ekki haft neina kennslubók til að styðjast við.” Hann hefur, ásamt kollegum sínum við sjúkrahúsið, grætt leg í níu konur. Í samtali við AP fréttastofuna segir hann að öllum konunum vegni vel eftir aðgerðina. Allar hafi þær í hyggju að verða þungaðar sem fyrst og eignast börn. Ýmist hafa konurnar fæðst án legs eða það hefur verið tekið úr þeim með skurðaðgerð. Legin, sem grædd hafa verið í þær, hafa mæður þeirra eða aðrir kvenkyns ættingjar gefið. Fyrsta aðgerðin var gerð í september árið 2012. Allar konurnar fór heim til sín nokkrum dögum eftir aðgerðina. Aðgerðir af þessu tagi eru umdeildar, meðal annars vegna þess að taka þarf leg úr öðrum konum til að græða í hinar. Enn er ekki vitað hvort aðgerðirnar muni bera þann árangur, sem að er stefnt, nefnilega að konurnar geti eignast börn. Á tveimur öðrum stöðum hafa verið gerðar tilraunir til að græða leg í konur. Það var gert í Tyrklandi og í Sádi-Arabíu, en þeim konum tókst ekki að verða þungaðar. Læknar í Bretlandi, Ungverjalandi og víðar hafa í hyggju að gera sams konar aðgerðir.
Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Fleiri fréttir Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Sjá meira