Höfuð álsins aldna fannst í frystinum Atli Ísleifsson skrifar 12. ágúst 2014 10:39 Állinn á myndinni tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Sérfræðingarnir sem leituðu að höfði álsins sem hafði verið 155 ár í brunni á Skáni og fannst dauður í síðustu viku, hafa nú fundið höfuðið í frystinum þar sem jarðneskar leifar álsins voru geymdar.Fréttir bárust af því í gær að höfuðið vantaði en gert var ráð fyrir það hefði losnað af þegar állinn var veiddur upp úr brunninum í síðustu viku. Í höfði fiska má finna kvarnirnar sem eru notaðar til að greina aldur fiska. „Við skoðuðum frystinn einu sinni enn og tókum þá eftir að höfuðið var þar eftir allt saman. Við tókum ekki eftir því fyrst og því höfum við verið að skemmta okkur hérna í brunninum,“ segir Johan Wagnström, fiskistjóri lénsstjórnar Skánar, í samtali við Dagens Nyheter en leit hófst að höfðinu í brunninum í gær. Þó að höfuðið hafi fundist í frystinum er ekki víst að dvöl sérfræðinganna í brunninum hafi verið til einskis. „Við vitum ekki hvort kvarnirnar hafi dottið út úr fiskinum og eru í brunninum,“ en leit og rannsóknir í brunninum munu því halda áfram eitthvað fram eftir degi. Wagnström segist nokkuð viss um að kvarnirnar hafi fundist í brunninum, þó að rannsóknarteymið þurfi að flytja þær á rannsóknarstofu til að fullvissa sig um slíkt. Haldið hefur verið fram að állinn hafi verið sá elsti í heimi og synt um í brunni í bænum Brantevik frá árinu 1859 þegar átta ára piltur kom honum fyrir í brunninum. Að sögn var álnum komið fyrir í brunninum árið 1859 af Samuel nokkrum Nilsson og hefur synt þar um á miklu dýpi. Stuðlaði myrkrið að því að augu álsins urðu ónáttúrulega stór. Állinn vakti fyrst athygli þegar innslag um hann var unnið fyrir sænska náttúrulífsþáttinn Mitt i naturen í sænska ríkissjónvarpinu. Þá var minnst á álinn í bók rithöfundarins Fritiof Nilsson Piraten, „Bombi Bitt og ég“ sem út kom 1932. Gert er ráð fyrir að krufning fari fram í fyrsta lagi 25. ágúst næstkomandi.
Tengdar fréttir Leita að höfði álsins aldna á Skáni Krufning á álnum sem var 155 ár í brunni á Skáni mun eitthvað tefjast þar sem höfuð fisksins vantar. 11. ágúst 2014 12:56 Elsti áll í heimi dauður eftir 155 ár í brunni Álnum var komið fyrir í brunni á Skáni í Svíþjóð árið 1859. 8. ágúst 2014 09:52 Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Fleiri fréttir Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Sjá meira
Leita að höfði álsins aldna á Skáni Krufning á álnum sem var 155 ár í brunni á Skáni mun eitthvað tefjast þar sem höfuð fisksins vantar. 11. ágúst 2014 12:56
Elsti áll í heimi dauður eftir 155 ár í brunni Álnum var komið fyrir í brunni á Skáni í Svíþjóð árið 1859. 8. ágúst 2014 09:52