Gripaflutningar á fötluðum Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 22. febrúar 2014 22:55
Bergur Þorri Benjamínsson, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar, Landssamband fatlaðara og varamaður í stjórn gagnrýnir harðlega þá bíla, sem notaðir eru víða um land til að keyra fatlaða á milli staða og talar um gripaflutninga á fötluðum í því sambandi. Þá furðar hann sig á því að ekki séu þriggja punkta belti eða hnakkapúðar í bílunum. Bergur Þorri hefur verið í hjólastjól í 15 ár eða eftir að hann slasaðist eftir að hann féll niður af þaki íþróttahússins á Akureyri þar sem hann var að vinna. Bergur Þorri er frá Ytri Tjörnum í Eyjafjarðarsveit en býr í Hafnarfirði í dag. Hann er málefnafulltrúi Sjálfsbjargar, Lanssambands fatlaðra og varamaður í stjórn. Hann er ekki sáttur við bílaflota ferðaþjónustu fatlaðra,sem sveitarfélög landsins sjá um, oftast eru þetta verktakar, sem hafa umsjón með bílunum. “Sumir mættu nú alveg fara í smá klössun, það þarf einfalega að endurnýja bílana, þeir eru keyrðir fjögur hundruð til átta hundruð þúsund kílómetra, þeir eru einfaldlega búnir að vera og þurfa endurnýjunar við”, segir Bergur Þorri. Hann líkir bílnum við gripaflutningabíla “Já, maður upplifir bílana sem hálgerða gripaflutningabíla vegan þess að þegar ekki er hugsað um öryggi heldur bara að koma sem flestum inn í bílana og taka sem flesta í hverri ferð þá hugsar maður það verandi úr sveit.” Bergur Þorri gagnrýnir líka öryggisbúnað bílanna. “Þessi gagnrýni snýst um það, ekki bara hér í Reykjavík, heldur út um allt land að ekki sé farið eftir 10 ára reglum og segja til um að það eigi t.d. að nota þriggja punkta belti og höfuðpúða þegar það er verið að koma fólki, sem situr í hjólastól í ferðaþjónustubílum. Ég skil ekki af hverju er ekki farið eftir þessum reglum fyrst þær eru þegar til staðar”, segir Bergur Þorri.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Innlent Fleiri fréttir Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Sjá meira