Tæplega 3500 skólar hafa verið eyðilagðir í Sýrlandi Stefán Árni Pálsson skrifar 19. september 2014 10:29 Að minnsta kosti 3.465 skólar hafa verið eyðilagðir eða skemmdir í Sýrlandi.
Menntun er nú ein áhættusamasta iðja sem börn og kennarar innan landamæra Sýrlands geta stundað. Enn er ráðist á skóla og þeir eyðilagðir í átökunum sem hafa staðið yfir í vel á fjórða ár. Starfsfólk Barnaheilla – Save the Children í norðurhluta Sýrlands verður mánaðarlega fyrir truflunum vegna loftárása og sprengiárása. Í júní neyddist starfsfólk til að flýja einn skólanna sem samtökin vinna í og í ágúst varð annar skóli fyrir árás og skemmdist. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Barnaheill. Að minnsta kosti 3.465 skólar hafa verið eyðilagðir eða skemmdir í Sýrlandi og margir þjóna nú hlutverki bækistöðva fyrir stríðandi fylkingar. Skýrsla Barnaheilla – Save the Children um menntun sýrlenskra barna kom út í dag. Í henni kemur meðal annars fram að: • skólar þurfa í auknum mæli að hætta rekstri vegna átakanna • skólasókn í Sýrlandi hefur fallið úr næstum 100% frá því átökin hófust og mælist nú næst verst í heiminum. Um 2,8 milljónir sýrlenskra barna eru ekki í skóla • allt að helmingur barna sem tóku þátt í rannsókninni og sækja skóla í Sýrlandi sögðu að það gerðist ,,sjaldan” eða ,,aldrei” að þau gætu einbeitt sér í tímum • ógnvekjandi tölur koma fram um misnotkun, einelti, líkamlegar refsingar og samfélagsútskúfun hjá sýrlenskum börnum sem eru flóttamenn í nágrannalöndunum ,,Það er skammarlegt að skólar og menntun barna skuli ekki vera virt í átökunum og að líf saklausra barna og kennara sé í hættu. Við þessar aðstæður er ekki að undra að sýrlensk börn heltist úr námi. Alþjóðasamfélagið verður að auka stuðning og tryggja að heil kynslóð sýrlenskra barna glatist ekki,” segir Roger Hearn, svæðisstjóri samtakanna í Sýrlandi. Skólasókn hefur minnkað um helming á landsvísu frá upphafi átakanna þegar hún var næstum 100%, en á átakasvæðum á borð við Aleppo er hún nú aðeins 6%. Í menntaverkefnum Barnaheilla er brottfall á átakasvæðum og þar sem mikið er um flóttafólk allt að tvisvar sinnum meira en annars staðar að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Fleiri fréttir Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Sjá meira