„Þetta er bara hrikalegt og vekur mikinn óhug“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 12. júní 2014 07:00 Árni Már hefur búið í Yaletown undanfarin tvö ár.
Fimmtíu og tveggja ára karlmaður liggur þungt haldinn eftir skotárás sem átti sér stað í Yaletown í Vancouver í Kanada í gær. Skotárásin átti sér stað fyrir utan vinnustað hans. Íslendingur á svæðinu segir árásina hafa vakið mikinn óhug á meðal fólks. „Það sem er svo sjokkerandi er það að svona hlutir gerast aldrei hérna. Það átti enginn von á þessu,“ segir Árni Már Þrastarson. Árni hefur búið á svæðinu undanfarin tvö ár þar sem hann leggur stund á meistaranám. Hann segir manninn sem skotinn var afskaplega viðkunnanlegan mann sem rekur hjólreiðaverslun, en árásarmaðurinn var starfsmaður í verslun mannsins. „Eftir að hann skaut manninn stökk hann upp á hjól og hjólaði að svæði sem vinsælt er hjá grunnskólabörnum. Þar króaði lögreglan hann af,“ segir Árni. Skotárásin upphófst að nýju þegar eftirför lögreglu hófst og slösuðust tveir lögregluþjónar, þó minniháttar. „Til mikillar lukku var læknir á svæðinu sem hafði starfað á bráðamóttöku síðastliðin 20 ár og það er líklega honum að þakka að maðurinn skuli enn vera á lífi. Hann var með 15 sentímetra gat á bakinu og búinn að missa um fjóra lítra af blóði.“ Stórum hluta borgarinnar var lokað í kjölfar árásarinnar og var fólki haldið inni í nærliggjandi byggingum. „Þetta er bara hrikalegt og vekur mikinn óhug,“ segir Árni að lokum.By-stander holding down wounds of #Yaletownshooting victim #shooting #vancouver pic.twitter.com/HWhWrkCi0I— Tina Lovgreen (@tinalovgreen) June 10, 2014
Mest lesið Mannleg mistök leiddu til birtingar draga í stað lokaútgáfu Innlent Færa vinsæla útitónleika yfir á sunnudag: „Ég ætla ekki bara að dæma ungmennin“ Innlent Segist vilja komast til himna Erlent Ísland frumstætt samanborið við Noreg Innlent Einn hugðist bera sig og ber að ofan öskraði Innlent „Á farsælum þrettán ára ferli hef ég bara heyrt af þessu tvívegis“ Innlent Kinnhestur frá Ingvari E. Sigurðssyni í tilefni af nýjum bjór Innlent Ekkert bendi til tengsla milli bankastuldsins og Gufunesmálsins Innlent Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Erlent Tilkynnt um par að slást Innlent Fleiri fréttir Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu „Því miður vantar ennþá ansi mikið“ Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Sneru aftur og er fylgt af lögreglu svo þeir flýi ekki Flytja eina frægustu kirkju Svíþjóðar um fimm kílómetra Vill vísa Thunberg frá Noregi fyrir mótmæli gegn olíuvinnslu Hafa afturkallað yfir 6.000 námsmannaleyfi „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Sjá meira