Fótbolti

Ólafur Ingi spilaði í sigri Zulte

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur var í sigurliði í dag.
Ólafur var í sigurliði í dag. Vísir/Getty
Ólafur Ingi Skúlason spilaði allan leikinn í sigri Zulte-Waregem á Standard Liege í belgísku úrvalsdeildinni í dag.

Ólafur Ingi nældi sér í gult spjald strax á áttundu mínútu leiksins, en fyrsta markið kom eftir 21. mínútu þegar Theo Bongonda kom Zulte yfir.

James Troisi tvöfaldaði forystuna á 88. mínútu, en Paul-Jose M'Poku minnkaði muninn í uppbótartími fyrir Standard. Nær komust þeir ekki og lokatölur 1-2 sigur Ólafs og félaga.

Zulte er enn á botninum með níu stig þrátt fyrir sigurinn í dag, en Standard Liege er í tólfta sæti með tólf stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×