Kristinn genginn í raðir Columbus Crew Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. desember 2014 16:28 Kristinn Steindórsson í Columbus Crew-peysu í dag. vísir/pjetur
Knattspyrnumaður Kristinn Steindórsson hefur náð samningum við bandaríska MLS-liðið Columbus Crew og gengur í raðir þess fyrir byrjun næsta tímabils. Hann gerir fjögurra ára samning við félagið. „Mér fannst þetta spennandi möguleiki um leið og hann kom upp þó ég vissi ekki mikið um deildina. En eftir að tala við þjálfarann og kynna mér klúbbinn er ég viss um að þetta er rétt skref,“ segir Kristinn í samtali við Vísi. Kristinn, sem er uppalinn hjá Breiðabliki, hefur spilað með Halmstad í Svíþjóð undanfarin þrjú ár, en hann skoraði átta mörk í 29 leikjum fyrir liðið í sænsku úrvalsdeildinni í ár. Hann verður annar Íslendingurinn sem spilar í MLS-deildinni, en Guðlaugur Victor Pálsson var á mála hjá New York Red Bulls fyrir tveimur árum. Þá þjálfaði Teitur Þórðarson lið Vancouver Whitecaps á fyrsta tímabili þess í deildinni. Columbus Crew var stofnað fyrir 20 árum og er eitt af liðunum tíu sem hafa verið með í MLS-deildinni frá endurstofnun hennar árið 1996. Liðið varð deildarmeistari árin 2004, 2007 og 2008, en 2008 vann liðið MLS-bikarinn. Það hafnaði í þriðja sæti austurdeildarinnar í ár með 52 stig í 34 leikjum og tryggði sér sæti í úrslitakeppninni. Columbus-liðið er frá samnefndri borg í Ohio ríki í Bandaríkjunum og spilar á Columbus Crew-vellinum sem tekur ríflega 20.000 manns í sæti. Hann var sá fyrsti sem byggður var sérstaklega fyrir lið í MLS-deildinni. Áhugi á fótbolta og þá sérstaklega MLS-deildinni er á fáum stöðu meiri en í Columbus, en þar spilar bandaríska landsliðið reglulega. Columbus-liðið er að mestu byggt upp á Bandaríkjamönnum eins og flest lið í deildinni. Með því spilar Emanuel Pogatetz, fyrrverandi miðvörður Middlesbrough. Þá er Federico Higuaín á mála hjá Columbus, en hann er bróðir Gonzalo Higuaín, leikmanns Napoli. Liðið missti tvo menn í hálfgerðu nýliðavali í gær þegar nýju liðin, New York City FC og Orlando City SC, máttu velja sér leikmenn frá hinum liðunum til að styrkja leikmannahópa sína. Columbus mátti þó verja ellefu leikmenn sem nýju liðin máttu ekki snerta. Missirinn var því ekki jafn mikill og hefði geta orðið. Tímabilið í MLS-deildinni 2015 hefst í mars og lýkur í október.
Fótbolti Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” Sjá meira