Fótbolti

Kristinn genginn í raðir Columbus Crew

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kristinn Steindórsson í Columbus Crew-peysu í dag.
Kristinn Steindórsson í Columbus Crew-peysu í dag. vísir/pjetur
Knattspyrnumaður Kristinn Steindórsson hefur náð samningum við bandaríska MLS-liðið Columbus Crew og gengur í raðir þess fyrir byrjun næsta tímabils. Hann gerir fjögurra ára samning við félagið.

„Mér fannst þetta spennandi möguleiki um leið og hann kom upp þó ég vissi ekki mikið um deildina. En eftir að tala við þjálfarann og kynna mér klúbbinn er ég viss um að þetta er rétt skref,“ segir Kristinn í samtali við Vísi.

Kristinn, sem er uppalinn hjá Breiðabliki, hefur spilað með Halmstad í Svíþjóð undanfarin þrjú ár, en hann skoraði átta mörk í 29 leikjum fyrir liðið í sænsku úrvalsdeildinni í ár.

Hann verður annar Íslendingurinn sem spilar í MLS-deildinni, en Guðlaugur Victor Pálsson var á mála hjá New York Red Bulls fyrir tveimur árum. Þá þjálfaði Teitur Þórðarson lið Vancouver Whitecaps á fyrsta tímabili þess í deildinni.

Columbus Crew var stofnað fyrir 20 árum og er eitt af liðunum tíu sem hafa verið með í MLS-deildinni frá endurstofnun hennar árið 1996.

Liðið varð deildarmeistari árin 2004, 2007 og 2008, en 2008 vann liðið MLS-bikarinn. Það hafnaði í þriðja sæti austurdeildarinnar í ár með 52 stig í 34 leikjum og tryggði sér sæti í úrslitakeppninni.

Columbus-liðið er frá samnefndri borg í Ohio ríki í Bandaríkjunum og spilar á Columbus Crew-vellinum sem tekur ríflega 20.000 manns í sæti. Hann var sá fyrsti sem byggður var sérstaklega fyrir lið í MLS-deildinni.

Áhugi á fótbolta og þá sérstaklega MLS-deildinni er á fáum stöðu meiri en í Columbus, en þar spilar bandaríska landsliðið reglulega.

Columbus-liðið er að mestu byggt upp á Bandaríkjamönnum eins og flest lið í deildinni. Með því spilar Emanuel Pogatetz, fyrrverandi miðvörður Middlesbrough. Þá er Federico Higuaín á mála hjá Columbus, en hann er bróðir Gonzalo Higuaín, leikmanns Napoli.

Liðið missti tvo menn í hálfgerðu nýliðavali í gær þegar nýju liðin, New York City FC og Orlando City SC, máttu velja sér leikmenn frá hinum liðunum til að styrkja leikmannahópa sína. Columbus mátti þó verja ellefu leikmenn sem nýju liðin máttu ekki snerta. Missirinn var því ekki jafn mikill og hefði geta orðið.

Tímabilið í MLS-deildinni 2015 hefst í mars og lýkur í október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×