Gylfi og félagar lutu í gras fyrir Tottenham | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. desember 2014 00:01 Ben Davies bjargar með frábærri tæklingu. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Swansea City töpuðu 1-2 fyrir Tottenham á heimavelli í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Með sigrinum komst Spurs upp í 7. sæti deildarinnar, en Swansea er komið niður í það níunda.Mörkin í leiknum má sjá hér að neðan. Harry Kane kom Tottenham yfir strax á 4. mínútu. Christian Eriksen tók hornspyrnu frá hægri, Kane reis hæst allra í teignum og skallaði boltann í netið. Þetta var 12. mark hans á tímabilinu. Swansea var nálægt því að jafna metin á 20. mínútu þegar Wilfried Bony slapp inn fyrir vörn Tottenham. Ben Davies, fyrrverandi leikmaður Swansea, bjargaði hins vegar frábærlega áður en Bony náði skoti á markið. Bony var ógnandi í leiknum og hann jafnaði metin á 48. mínútu með skoti af stuttu færi. Þetta var 8. deildarmark Bonys í vetur og 20. deildarmark hans á árinu 2014. Gylfi Þór Sigurðsson átti gott skot framhjá á 66. mínútu og skömmu síðar skaut Jefferson Montero einnig framhjá í fínu færi. Það var hins vegar Tottenham sem átti síðasta orðið í þessum leik. Þegar ein mínúta var eftir fékk Eriksen boltann hjá vinstra vítateigshorninu og lagði boltann smekklega í markið og tryggði Spurs stigin þrjú. Gylfi spilaði allan leikinn gegn sínum gömlu félögum.Swansea 0-1 Tottenham Swansea 1-1 Tottenham Swansea 1-2 Tottenham
Enski boltinn Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Sjá meira