Afmælisbarnið skoraði tvö í öruggum sigri Arsenal | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. desember 2014 13:08 Oliver Giroud fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Arsenal vann öruggan sigur á Newcastle United í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 4-1 fyrir Arsenal sem er með 26 stig í 6. sæti deildarinnar. Newcastle eru sæti neðar með 23 stig.Mörkin í leiknum má sjá hér að neðan. Arsenal var mun sterkari aðilinn í leiknum og sótti af miklum krafti strax frá byrjun. Oliver Giroud skoraði fyrsta markið eftir stundarfjórðungsleik með fallegum skalla eftir fyrirgjöf Alexis Sanchez frá hægri. Nokkrum mínútum áður hafði Per Mertesacker skallað í slá eftir hornspyrnu. Danny Welbeck var nálægt því að bæta við marki eftir hálftíma, en skaut framhjá í fínu færi. Skömmu síðar varði Wojciech Szczesny tvisvar frábærlega frá Mike Williamsson og Papiss Cisse eftir aukaspyrnu frá Jack Colback. Staðan var 1-0 í leikhléi, en Santi Cazorla tvöfaldaði forystuna með frábæru marki á 54. mínútu eftir sendingu frá Sanchez. Fjórum mínútum seinna skoraði Giroud annað mark sitt og þriðja mark Arsenal með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf Hectors Bellerin. Ayoze Perez minnkaði muninn á 63. mínútu eftir aukaspyrnu Jacks Colback, en lengra komst Newcastle ekki. Cazorla skoraði svo sitt annað mark á 88. mínútu, úr vítaspyrnu eftir að brotið var á Welbeck innan teigs. Aldeilis góður leikur hjá Cazorla sem fagnaði þrítugsafmæli sínu í dag.Fyrstu fjögur mörk leiksins Santi Cazorla, 4-1
Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ Sjá meira