„Læknirinn hringdi og sagðist hafa séð að ég væri með ebólu“ Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. desember 2014 11:30 Vísir/Getty
Michael Essien, leikmaður AC Milan, segir að sér hafi ekki verið skemmt þegar sögusagnir fóru á kreik á samfélagsmiðlinum Twitter að hann væri sýktur af ebóluveirunni. Fyrir um tveimur mánuðum síðast fóru þessar fregnir svo hátt að málið rataði inn á borð fréttamiðla víða um heim. Essien var nýlega spurður um málið en hann tekur nú þátt í herferð sem beinist að því að útrýma veirunni. „Þetta var sunnudagur. Ég æfði eins og venjulega um morguninn og fór svo heim um síðdegið og tók því rólega,“ sagði hann. „Ég fékk svo símtal frá lækni félagsins og hann sagði mér að það væru komnar fréttir um að ég væri með ebólu. Ég sagði honum að hann hefði séð mig á æfingu um morguninn og því væri það ómögulegt.“ Hann segir að stuttu síðar hafi honum borist sífellt fleiri skilaboð vegna málsins og honum varð þá ljóst að þetta var ekkert grín. „Ég var meira að segja farinn að fá batakveðjur og fjölskyldumeðlimir og vinir voru farnir að hafa samband til að athuga líðan mína.“ Essien ákvað því að bregðast við málinu og sendi út sameiginlega yfirlýsingu með AC Milan þess efnis að hann væri fullkomlega heill heilsu. „En það tók fólk samt um tvo daga til að hætta að ræða um þetta. Þetta var ekki ánægjuleg reynsla,“ sagði hann.
Enski boltinn Mest lesið Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Fótbolti „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Leicester náði ekki að vinna Mikael Egil og félaga Ánægður að fá Mudryk til baka Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Lið Tómasar Bents tapaði eftir dramatískar lokamínútur Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Íslendingaslagur endaði jafn í Danmörku Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Chelsea staðfestir komu Danny Welbeck Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Enn skorar Emelía „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Vinícius á förum? JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn „Verður skrýtið að sjá hann standa hinu megin“ Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Sjá meira