Byrjað að stækka Anfield á mánudaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2014 20:00 Vísir/Getty
Anfield-leikvangurinn, heimavöllur enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool, mun taka miklum breytingum á næstunni en ætlunin er að völlurinn taki 59 þúsund manns fyrir 2016-17 tímabilið. Liverpool ætlar að eyða 100 milljónum punda, um 19,5 milljörðum íslenska króna, í verkefnið en þeir gátu farið af stað eftir að tókst að kaupa upp síðasta húsið sem stóð í vegi fyrir framkvæmdunum. Anfield tekur 45.500 manns í sæti í dag og munu því vera búin að bætast við 13.500 sæti þegar framkvæmdum lýkur. Liverpool sagði í dag að byrjað verið að stækka Anfield-leikvanginn á mánudaginn en fyrsta stigið er að bæta þriðju hæðinni við aðalstúku vallarins. Með því bætast við 8300 sæti. Stúkan við Anfield Road verður seinna stækkuð um 4800 sæti. Í viðbót við þetta er ætlunin að betrumbæta umhverfið í kringum völlinn og minningarreiturinn um Hillsborough-slysið verður meðal annars færður til. Liverpool hefur lengi leitað eftir leiðum til að eignast stærri heimavöll og um tíma voru uppi hugmyndir um að byggja upp nýjan leikvang. Niðurstaðan var hinsvegar að stækka Anfield en til þess þurfti félagið að kaupa upp húsin í kringum leikvanginn. Það tók sinn tíma. Með þessum framkvæmdum kemst Anfield líka í hóp þeirra leikvanga sem geta hýst stórleiki á vegum UEFA, evrópska knattspyrnusambandsins.Vísir/Getty
Enski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn FH - Stjarnan | Hefja tímann undir stjórn Arons Pálmarssonar Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Sjá meira