Múbarak ekki dæmdur fyrir morð á mótmælendum Bjarki Ármannsson skrifar 29. nóvember 2014 11:19 Múbarak er nú þegar að afplána þriggja ára dóm fyrir fjárdrátt. Vísir/AFP
Dómstóll í Egyptalandi hefur vísað frá dómi öllum ákærum gegn Hosní Múbarak, fyrrverandi forseta landsins, sem snúa að drápi 239 mótmælenda í byltingu gegn honum árið 2011. Múbarak, fyrrverandi innanríkisráðherra hans og sex aðrir voru dæmdir í lífstíðarfangelsi í júní 2012 fyrir að hafa lagt á ráðin um að drepa mótmælendurna en í fyrra var málið tekið upp á ný vegna tæknilegra atriða. Múbarak, sem er 86 ára, er nú þegar að afplána þriggja ára dóm fyrir að draga sér fé frá hinu opinbera. Samanlagt er talið að um 800 mótmælendur hafi látið lífið í átökunum 2011, en ákærurnar gegn Múbarak snéru aðeins að þessum 239.Samkvæmt fréttastofu BBC brutust út mikil fagnaðarlæti í dómsal þegar dómari kvað upp úrskurð sinn. Margir ættingjar hinna látnu eru þó gríðarlega ósáttir. „Þessi úrskurður þýðir að enginn hefur verið látinn bera ábyrgð á drápum rúmlega 800 manns,“ er haft eftir egypskum fréttamanni. „Það er líkt og hinir látnu hafi framið fjöldasjálfsmorð.“
Tengdar fréttir Mubarak dæmdur í þriggja ára fangelsi Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, var í morgun dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að draga sér fé úr opinberum sjóðum. Synir hans tveir fengu einnig dóma í sama máli og þurfa að dúsa í fangelsi í fjögur ár. 21. maí 2014 08:52 Egypskir dauðadómar vekja hörð viðbrögð Egypskur dómstóll frestaði í gær dómsuppkvaðningu yfir nærri 700 manns, daginn eftir að 529 voru dæmdir til dauða á einu bretti. 26. mars 2014 07:00 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Sjá meira
Mubarak dæmdur í þriggja ára fangelsi Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, var í morgun dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að draga sér fé úr opinberum sjóðum. Synir hans tveir fengu einnig dóma í sama máli og þurfa að dúsa í fangelsi í fjögur ár. 21. maí 2014 08:52
Egypskir dauðadómar vekja hörð viðbrögð Egypskur dómstóll frestaði í gær dómsuppkvaðningu yfir nærri 700 manns, daginn eftir að 529 voru dæmdir til dauða á einu bretti. 26. mars 2014 07:00