Erlent

Kusu náið samband við Vesturlönd

Linda Blöndal skrifar
Úkraínsku flokkarnir sem vilja aukin tengsl Vesturlönd og Evrópusambandið unnu sannfærandi sigur í kosningum í landinu í gær. Kommúnistaflokkur landsins fékk í fyrsta sinn síðan árið 1991 engin þingsæti og var langt frá því að ná kjöri.

„Ég er ánægður því ég kaus flokk Poroshenkos. Ég hef trú á stefnu hans og því sem hann hefur náð fram. Hann gerir allt fyrir fólkið. Þess vegna er ég mjög ánægður með þetta og ég trúi því að allt verði gott í landinu okkar", segir Oleksandr Kutsenko sextugur kjósandi í Kænugarði í frétt hér um kosningarnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×