Samþykkja lokun Bromma-flugvallar Atli Ísleifsson skrifar 15. október 2014 13:03 Bromma-flugvöllur er einungis um átta kílómetrum frá miðborg Stokkhólms. Vísir/AFP
Til stendur að loka Bromma-flugvelli í Stokkhólmi í síðasta lagi árið 2022 og á landið að nýtast til byggingar íbúðahúsa. Forsendan er að mögulegt verði að loka vellinum án þess að draga úr þróun og atvinnumöguleikum á svæðinu. Ríkisstjórnarflokkar Jafnaðarmanna og Græningja hafa skrifað undir samkomulag þessa efnis ásamt þingflokki Vinstriflokksins og Feministafrumkvæðinu sem á reyndar ekki fulltrúa á þingi. „Til að Stokkhólmur geti haldið áfram að vaxa þarf borgin bæði land til að skapa ný íbúðahverfi og skilvirka innviði. Loka á Bromma-flugvelli til að stuðla að lausn sem tryggir bæði flug og land fyrir byggingu íbúða til lengri tíma,“ segir í tilkynningu frá flokkunum. Bromma-flugvöllur er einungis um átta kílómetrum frá miðborg Stokkhólms og er fyrst og fremst notaður undir innanlandsflug. Flokkarnir vilja að hætt verði við fyrirhugaðar uppfærslur á flugvellinum, sem var ætlað að stuðla að því að flugvöllurinn gæti tekið á móti stærri og þyngri vélum.Í frétt sænska ríkissjónvarpsins segir að flugumferðin til og frá Bromma skuli smám saman flytjast til hinna tveggja flugvallanna í nágrenni Stokkhólms, Skavsta og Arlanda.
Mest lesið Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglunds Innlent Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri Innlent Þekkir ekki eina stelpu sem ekki hefur verið áreitt Innlent Borðaði súrdeigsbrauð og mældist með áfengi í útblæstri Innlent Hefur skilning á báðum sjónarmiðum í Heiðmerkurmálinu Innlent Lækkandi fæðingartíðni er vandamál sem leysist ekki án innflytjenda Innlent Umferðartafir vegna framkvæmda við Kringlumýrarbraut í sumar Innlent Býður til flugveislu á Reykjavíkurflugvelli Innlent Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Innlent Segja ógnarstjórn ríkja á Þjóðminjasafninu Innlent Fleiri fréttir Ryður leiðina fyrir Trump til að vísa hálfri milljón úr landi Leita „Skrattans í Ozarkfjöllum“ í hellum og skógum Fleiri ákærur væntanlegar í Liverpool Vísuðu til rannsókna sem voru ekki til í „heimsklassa“ skýrslu Enn hætta á flóðum þar sem heilt þorp hvarf í aurskriðu Sagði Diddy hafa nauðgað sér Russell Brand lýsir yfir sakleysi sínu Vestræn ríki niðurgreiða stríðsrekstur Rússa í Úkraínu Kærir Costner fyrir „ofbeldisfulla óundirbúna“ nauðgunarsenu Hamas hafna líklegast vopnahléstillögu Trump Lífstíðarfangelsi fyrir að selja dóttur sína Ísrael samþykkir vopnahlé Trumps Ákærður fyrir að keyra á hóp fólks í Liverpool Störfum Musk lokið hjá DOGE Skortir fólk til framleiðslu hergagna í Evrópu Heilt þorp varð undir aurskriðu í Sviss Boða nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Segir Ísraelsher hafa myrt leiðtoga Hamas Tuttugu ára fangelsisvist fyrir kynferðisbrot gegn 299 börnum Merz lofaði Selenskíj aðstoð við langdrægar skotflaugar Vísaði frá máli gegn orkurisa vegna bráðnunar jökla Á góðri leið með loftslagsmarkmið standi ESB-ríki við sitt Náðar raunveruleikastjörnur sem sviku tugmilljónir dala út úr bönkum Stöðva vegabréfsáritanir námsmanna og rannsaka umsækjendur nánar Geimfar SpaceX splundraðist eftir 45 mínútna flug Springur Starship í þriðja sinn í röð? „Hann er að leika sér að eldinum!“ Sakaður um morðtilraun og akstur undir áhrifum fíkniefna Náðar spilltan fógeta Telja vanrækslu hafa valdið mannskæðu þyrluslysi í Finnlandi Sjá meira